Enski boltinn

Viðar Örn skoraði í þriðja leiknum í röð

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Markahrókur.
Markahrókur. vísir/afp
Viðar Örn Kjartansson, framherji Maccabi Tel Aviv, skoraði sigurmark liðsins í 1-0 sigri í nágrannaslag á móti Hapoel Tel Aviv í ísraelsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Viðar Örn skoraði markið strax á níundu mínútu en stigin þrjú sem Viðar tryggði sínu liði skaut því upp í annað sæti deildarinnar. Það er nú átta stigum á eftir toppliiði Hapoel Be'er Sheva.

Þetta er þriðji leikurinn í röð sem Viðar Örn skorar í fyrir Maccabi í öllum keppnum en hann skoraði fjórða mark liðsins í deildarsigri gegn Hapoel Ra'anana í síðustu umferð og eitt mark í bikarsigri fyrir níu dögum síðan.

Viðar Örn er búinn að skora átta mörk í fimmtán deildarleikjum fyrir Maccabi en það virðist ekki skipta máli hvar Selfyssingurinn spilar, hann skorar alltaf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×