Fótbolti

Viðar Örn hetja Jiangsu

Anton Ingi Leifsson skrifar
Viðar Örn í leik með Vålerenga.
Viðar Örn í leik með Vålerenga. vísir/getty
Viðar Örn Kjartansson reyndist hetja Jiangsu Guoxin-Sainty í kínversku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, en Sainty vann 1-0 útisigur á Guizhou Renhe.

Viðar skoraði eina markið á 38. mínútu, en hann hefur mátt þola bekkjarsetu undanfarið. Í vikunni var svo skipt um þjálfara og Viðar byrjar vel undir hans stjórn.

Lokatölur urðu 1-0, en Viðari var skipt af velli á 86. mínutu, en Sölvi Geir spilaði allan leikinn í vörninni.

Með sigrinum skaust Jiangsu Guoxin-Sainty upp í sjötta sætið, en Guzhou er í því fimmtánda eða næstneðsta sæti deildarinnar.


Tengdar fréttir

Viðar og Sölvi fá nýjan þjálfara

Viðar Örn Kjartansson, Sölvi Geir Ottesen og félagar þeirra í kínverska liðinu Jiangsu Guoxin-Sainty hafa fengið nýjan þjálfara.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×