Fótbolti

Viðar Örn enn á skotskónum

Viðar heldur áfram að skora..
Viðar heldur áfram að skora.. vísir/afp
Viðar Örn Kjartansson skoraði fyrra mark Maccabi Tel Aviv í 2-1 sigri gegn Maccabi Petah Tikva í ísraelsku bikarkeppninni í knattspyrnu í kvöld.

Leikurinn var síðari leikur liðanna en þeim fyrri lauk með 1-0 sigri Viðars og félaga.

Viðar Örn kom Tel Aviv yfir á 50.mínútu en gestunum tókst að jafna fjórum mínútum síðar. Sigurmark heimamanna kom úr vítaspyrnu á 90.mínútu og tryggðu þeir sér þar með sæti í næstu umferð bikarsins.

Viðar Örn hefur heldur betur verið á skotskónum í síðustu leikjum Maccabi Tel Aviv og skorað í hverjum leik. Hann hefur verið orðaður við brottför frá félaginu en fréttir bárust af því að Zenit frá Pétursborg hefði lagt fram tilboð upp á 9 milljónir Evra í Viðar.

Ef af vistaskiptunum yrði myndi Viðar Örn ganga til liðs við Zenit í sumar en hann gekk til liðs við Maccabi Tel Aviv fyrir tímabilið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×