Fótbolti

Viðar kominn með fjögur mörk í Kína

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Viðar hefur farið vel af stað í Kína.
Viðar hefur farið vel af stað í Kína. vísir/getty
Viðar Örn Kjartansson var á skotskónum þegar Jiangsu Guoxin-Sainty gerði 3-3 jafntefli við Guangzhou Evergrande í kínversku ofurdeildinni í dag.

Viðar kom inn á sem varamaður fyrir landa sinn, Sölva Geir Ottesen, sem fór meiddur af velli á 63. mínútu.

Tuttugu mínútum síðar kom Viðar Jiangsu í 2-3 með sínu fjórða marki á tímabilinu.

Það dugði þó ekki til sigurs því Ricardo Goulart jafnaði metin fyrir meistara Guangzhou á fjórðu mínútu í uppbótartíma.

Jiangsu er í 8. sæti deildarinnar með 11 stig eftir sjö leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×