Tónlist

Við tókum þennan rokkstjörnupakka á mjög skömmum tíma

Tinni Sveinsson skrifar
Í fyrsta þætti nýrrar þáttaraðar Hljóðheima hér á Vísi er tónlistarmaðurinn og alþingismaðurinn Óttarr Proppé í aðalhlutverki. Óttarr ræðir hér tónlistarferil sinn, þar á meðal hljómsveitirnar Dr. Spock og Ham og fer um víðan völl.

„Það var mín gæfa að ég var aldrei sérstaklega góður á hljóðfæri. Ég neyddist til að gera eitthvað annað. Var ekki góður söngvari en neyddist til að syngja og semja texta. Ég hafði gaman að því að semja texta,“ segir Óttarr þegar hann rifjar upp sín fyrstu ár í tónlist í Hafnarfirðinum.

Myndatökumaðurinn Sindri Grétarsson og Guðni Einarsson við tökur á þættinum.
„Ég kynnist síðan Sigurjóni Kjartanssyni, þessum villingi frá Ísafirði sem var fluttur í Kópavoginn. Hann var froðufellandi pönkrugludallur með gítaráhuga. Einhvern tímann kom sú hugmynd að tengja Hafnarfjarðarklíkuna og Kópavogsklíkuna og Björn Blöndal reddaði æfingahúsnæði,“ segir Óttarr um upphaf hljómsveitarinnar Ham.

„Þetta gerðist síðan mjög hratt þarna 1988. Þetta var á sama tíma og Sykurmolarnir voru að slá í gegn í útlöndum. Nokkrum mánuðum seinna vorum við farnir að túra með þeim í Þýskalandi. Við tókum þennan rokkstjörnupakka á mjög skömmum tíma.“

Þátturinn er sá fyrsti í þessarri þáttaröð af Hljóðheimum. Meðal fleiri gesta í þáttaröðinni eru Sölvi Blöndal, Reykjavíkurdætur, Valgeir Sigurðsson í Bedroom Community og Boogie Trouble.

Þættirnir hétu áður Á bak við borðin og hafa verið í sýningu hér á Vísi síðan í fyrra. Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir frá tökunum á þáttaröðinni.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×