Við mótum framtíðina

Fréttablaðið Aðsendar greinar 22. febrúar 2012 06:00
Fjármál
Páll Harðarson
forstjóri NASDAQ OMX Iceland
Fjármál Páll Harðarson forstjóri NASDAQ OMX Iceland
Páll Harðarson skrifar:
Merki eru um að heldur sé að lifna yfir íslenskum þjóðarbúskap. Tvísýnt er þó um hversu viðvarandi eða kröftugur batinn í efnahagslífinu verður enda ýmislegt sem letur fyrirtæki til fjárfestinga og uppbyggingar. Má þar nefna gjaldeyrishöft, blikur á lofti í alþjóðlegum efnahagsmálum og óvissu um framtíðarumhverfi sjávarútvegs. Brýnt er því að huga að leiðum sem glætt geta vöxt efnahagslífsins og bætt lífskjör.

Framtíðarhagvöxtur mun að líkindum öðru fremur hvíla á árangri fyrirtækja sem nú flokkast sem smá eða meðalstór. Þau skapa stóran hluta nýrra starfa. Hér á landi, eins og víða annars staðar, er takmarkað aðgengi þessara fyrirtækja að fjármagni sérstakt áhyggjuefni. Í Evrópu huga stjórnvöld að sérstökum aðgerðum til að styðja við starfsemi smárra og meðalstórra fyrirtækja. Í Bandaríkjunum hafa breytingar á regluverki undanfarin ár gert slíkum fyrirtækjum mun örðugara um vik en áður að sækja sér fjármagn til vaxtar á hlutabréfamarkaði. Þeim hefur því gengið brösuglega að vaxa á eigin forsendum og óttast er að þetta verði til þess að vöxtur og atvinnusköpun verði mun minni en ella. Því er einnig í Bandaríkjunum rætt um leiðir til úrbóta.

Mikil gróska er í starfsemi nýsköpunarfyrirtækja hér á landi og full ástæða er til að ætla að þau geti skapað þúsundir starfa á næstu árum ef mótað er hagstætt umhverfi til vaxtar. Lög um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki sem samþykkt voru síðla árs 2009 voru skref í rétta átt. Lögin gerðu nýsköpunarfyrirtækjum kleift að sækja um stuðning í formi skattfrádráttar. Alls voru greiddar rúmar 440 milljónir króna til 53 nýsköpunarfyrirtækja vegna ársins 2010.

Æskilegt er að fylgja eftir þessum aðgerðum með umbótum á starfsumhverfi smárra og meðalstórra fyrirtækja. Á ákveðnu stigi í þroskaferli fyrirtækja getur það ráðið úrslitum að hafa aðgang að fjármagni frá breiðum hópi fjárfesta. Árangur fyrirtækja á borð við Marel, Össur og Actavis er skýr vitnisburður um það. Öll hafa margfaldast að stærð frá því þau voru skráð í Kauphöllina á síðasta áratug síðustu aldar.

Marel er nú stærsta félagið á markaði miðað við markaðsvirði. Það var metið á um 300 milljónir króna við skráningu í Kauphöllina á árinu 1992. Starfsmenn voru 45, þar af 5 starfandi erlendis. Nú, tæplega 20 árum síðar, er fyrirtækið alþjóðlegt og leiðandi á sínu sviði. Virði þess er metið ríflega 100 milljarðar króna. 3.900 starfsmenn starfa hjá fyrirtækinu þar af um 450 hér á landi. Þetta er dæmi um mikinn slagkraft í atvinnusköpun og þessi árangur hefði verið óhugsandi án aðgangs að fjármagni á íslenskum hlutabréfamarkaði. Álíka má segja um Össur og reyndar fyrirtæki víðar, en nýleg rannsókn frá Bandaríkjunum hefur sýnt fram á að atvinnusköpun hjá þeim fyrirtækjum sem skrá sig á hlutabréfamarkað hefst fyrst fyrir alvöru eftir að á hlutabréfamarkað er komið. Þarf það ekki að koma á óvart enda skiptir fjármögnun sköpum í vexti fyrirtækja.

Kauphöllin rekur nú sérstakan markað sem er sniðinn að smáum og meðalstórum fyrirtækjum, First North Iceland. Reglur First North markaðarins eru til þess fallnar að stuðla að góðum viðskiptaháttum og markvissri upplýsingagjöf fyrirtækja en jafnframt stilla kostnaði í hóf. Viðskiptavettvangur er því til staðar, einnig áhugasöm fyrirtæki og fjárfestar en aðrar hindranir eru í veginum. Mörgum þeirra mætti þó ryðja úr vegi með litlum tilkostnaði.

Það dregur úr möguleikum nýsköpunarfyrirtækja að afla sér fjár á markaði að hlutabréf fyrirtækja á First North markaðnum flokkast sem óskráð verðbréf í eignasafni lífeyrissjóðanna. Lífeyrissjóðirnir hafa því takmarkaða möguleika á að styðja við fyrirtækin þegar þau taka sín fyrstu spor á markaði sem aftur letur þau til að fara á markað. Breytingar á lífeyrissjóðalögum sem lyftu þessum verðbréfum skör ofar en óskráðum verðbréfum, eins og eðlilegt má teljast, myndu í senn auka getu lífeyrissjóðanna til að styðja við íslenskt efnahagslíf og stuðla að aukinni fjölbreytni í eignasafni þeirra.

Tæknileg útfærsla auðlegðarskatts dregur jafnframt úr hvata eigenda nýsköpunarfyrirtækja til að afla fjár á markaði enda er hún þess valdandi að skráning á markað leiðir í flestum tilfellum til hækkunar á auðlegðarskatti eigenda. Þetta mætti leiðrétta með einfaldri lagabreytingu. Ólíklegt er að ríkissjóður yrði af verulegum fjármunum vegna þessa.

Einnig mætti huga að skattalegum hvötum. Ein hugmynd sem viðruð hefur verið í Bandaríkjunum er að veita þeim fjárfestum sem taka þátt í útboði smárra og miðlungsstórra fyrirtækja í aðdraganda skráningar á markað afslátt af fjármagnstekjuskatti ef þeir halda hlutabréfunum að lágmarki í ákveðinn árafjölda. Þessi leið myndi ekki kosta ríkissjóð neitt til að byrja með.

Fleira mætti nefna en aðalatriðið er að ráðast má í áhrifaríkar aðgerðir sem hafa lítinn kostnað í för með sér. Þær hefðu strax marktæk jákvæð áhrif og þau áhrif færu vaxandi með tímanum. Þrátt fyrir sveiflur í alþjóðlegu efnahagsumhverfi og önnur utanaðkomandi áhrif eru það þó fyrst og fremst við sjálf sem þurfum, líkt og frumkvöðlar nýsköpunarfyrirtækja að sýna frumkvæði og horfa fram á veginn. Við sjálf mótum okkar framtíð.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 26. maí. 2012 06:00

Komdu út að leika

Við fögnum Degi barnsins í fimmta sinn á morgun en samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnar frá því...  

Meira
Aðsendar greinar 26. maí. 2012 06:00

Að draga börn fyrir dómstóla

Kristín Völundardóttir, forstjóri Útlendingastofnunar, hvetur til umræðu um hælisleitendur...  

Meira
Aðsendar greinar 26. maí. 2012 06:00

Orð forsetans um "skrautdúkku“

Ólafur Ragnar Grímsson steig fram á svið kosningabaráttunnar nýlega með orðræðu sem um mar...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 14:00

Norðurlönd á norðurskautssvæðinu

Norðurskautssvæðin hafa flust nær miðju heimsstjórnmálanna og munu fá aukið vægi í framtíð...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

"Nýja háskólasjúkrahúsið – kjarni málsins“

Í aðsendri grein Sighvats Björgvinssonar þ. 21. maí 2012 greinir Sighvatur snöfurmannlega ...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Þrír menn og króna

Árið 2006 tókum við hjónin lán fyrir íbúð. Við áttum von á okkar fyrsta barni og fannst áb...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 17:00

1000 andlit MS - að lesa bók með lopavettlinga á höndum

Hefur þú lesandi góður reynt að lesa/fletta dagblaðinu eða bók með lopavettlinga á höndum?...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Fiskveiðistjórnunin. Allan sannleikann, takk!

Ógnandi mynd er nú þrengt inn í þjóðarsálina með auglýsingum og fyrirsögnum í fjölmiðlum u...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Friðun í herkví sveitarfélaga og bænda

Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, segir í fréttaskýringu (Friðlýsing náttúrusvæða)...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Um vald forsetans

Margt bendir til að vandi okkar Íslendinga um þessar mundir sé ekki síður menningarlegur e...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Gulrætur og villandi samanburður

Fréttablaðið birti þann 8. maí sl. grein um framleiðslu ísraelska fyrirtækisins Protalix B...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Ekki var Huang gerður strámaður

Í blaðaviðtali í ágúst í fyrra kynnti Hjörleifur Sveinbjörnsson, yfirþýðandi í Þýðingarmið...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Þegar tunnurnar þagna

Ég er þreyttur á að vera reiður. En samt var eigninni minni stolið ásamt öllu mínu sparifé...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Svar við bréfi Sighvats

Í stuttri grein Sighvats Björgvinssonar í Fréttablaðinu 24. maí sl. þar sem hann þakkar fy...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Þú ert stunginn, það er vont og þú færð engan pening

Á hverjum degi láta um 70 manneskjur það yfir sig ganga að víkja í eina klukkustund frá da...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 16:00

Eru Íslendingar vel menntuð þjóð?

Því er iðulega slegið fram sem sönnu að þrátt fyrir bágan efnahag og erfitt ástand hafi Ís...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 11:48

Óskabarn stjórnvalda: þögull forseti

Það þótti ekki tiltökumál þegar að Viðskiptaráð hreykti sér af því fyrir hrun að stjórnvöl...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Takk, Jóhannes

Ég þakka Jóhannesi Gunnarssyni lækni kærlega fyrir svar hans við grein minni um Landspítal...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Er allur þjófnaður í matvöruverslunum tilkynntur til lögreglu?

Undanfarin ár hefur talsmaður matvöruverslunar mætt reglulega á útvarpsstöðina Bylgjuna og...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Stjórnmálasamtökum er gert mishátt undir höfði

Mikilvægt er í samfélagsumræðunni að sanngirni sé gætt í samanburði á sýnileika stjórnmála...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Spurningar áréttaðar

Í grein hér í blaðinu þann 3ja maí síðastliðinn spurði ég forystu Bændasamtaka Íslands, að...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Kynheilbrigðismál – ekki er ráð nema í tíma sé tekið!

Gagnleg umræða um kynheilbrigðismál hefur verið í fjölmiðlum að undanförnu. Rætt hefur ver...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 11:53

Nokkur orð um Vaðlaheiðargöng

Töluverðar deilur hafa átt sér stað undanfarin misseri varðandi fyrirhugaða framkvæmd Vaðl...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Er þjóðin bótaskyld vegna gjafakvótans?

Núverandi kvótahafar hafa ítrekað smjattað á málsókn gegn ríkinu verði kvótinn innkallaður...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Boðið upp í dansinn

Úr þessum penna hefir margsinnis dropið, að sagnfræðingar framtíðar muni dæma harðast allr...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Sagan af brúnu tunnunni

Ég myndi helst vilja eignast hænur til að breyta matarafgöngunum mínum í egg, en get það e...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Við biðjum Skálholti griða

Sagan segir að Gissur Ísleifsson hafi um aldamótin 1100 gefið Skálholtsland með því skilyr...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Sameinum Neytendastofu og talsmann neytenda

Í byrjun árs 2010 boðaði forsætisráðherra að raunhæft væri að fækka 200 stofnunum ríkisins...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Á nútíminn erindi á Bessastaði?

Frá unga aldri hef ég litið á forsetaembættið sem formlegt embætti, þar sem einungis fína ...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Ferðamenn + viðhald ferðastaða = gistináttaskattur?

Skattlagningarform ferðamannaskatts er ekki í samræmi við markmið samhangandi laga þó að h...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 16:50

Ég hafði val

Í nokkur ár hef ég heyrt málefnaleg rök um þróun handboltans sem og innihaldslausar umræðu...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Sátt í Aserbaídsjan

Borgin Shusha tilheyrði Aserbaídsjan fram til 8. maí 1992, þegar hún var hernumin af Armen...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Ljósnet fyrir neytendur

Síminn hefur nýlega sagt frá því að fyrirtækið hafi hafið annan hluta Ljósnetsvæðingar sem...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Til Heiðu

Ekki hafði ég ætlað mér að standa í ritdeilu en í svari Heiðu Kristínar Helgadóttur (Til k...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Aðbúnaður dýra á Íslandi

23-25. des. sl. var viðtal í Fréttatímanum við Árna Stefán Gunnarsson þar sem hann m.a. tj...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Pólitískt hlutverk forsetans

Andstætt því sem stundum er gefið í skyn eru íslensk stjórnlög að meginstefnu skýr um stjó...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Lína lifir!

Á fundi sínum í Ósló 26. apríl sl. samþykktu norrænu mennta- og menningarmálaráðherrarnir ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Jákvæð samskipti

Einelti er því miður afar alvarlegt samfélagslegt vandamál og sem slíkt er nauðsynlegt að ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Slegist við strámann á Fjöllum

Merkilegur andskoti hvað við erum léleg að ræða málin. Hér er lenska að virða ekki skoðani...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Öflugt sjúkrahús - kjarni málsins

Um þessar mundir er í nágrannalöndum Íslands víða verið að rífa sjúkrahúsbyggingar sem ekk...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Flokkur eða hagsmunasamtök?

Meðan hagsmunasamtök berjast fyrir afmarkaðan hóp manna sem á eitthvað sameiginlegt, berja...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Sérfræðingur að sunnan

Helga Vala Helgadóttir hefur í nýlegu viðtali við Fréttatímann og í grein í Fréttablaðinu ...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Opið bréf til menntamálaráðherra

Nú í vor sóttu foreldrar þroskaskerts drengs á ellefta ári um skólavist fyrir drenginn í K...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 16:10

Stuðningsgrein: Að kveða burt snjóinn

Það blása frískir og fjörugir vorvindar um landið. Æðarfuglinn hreiðrar um sig í Bessastað...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Nýja háskólasjúkrahúsið – kjarni málsins

Umræðan um risabyggingu nýs spítala í miðbæ Reykjavíkur er hafin. Halldór Laxness orðaði u...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Ráðherrann og samræðugenin

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði einkar athyglisverða grein í Fréttablaðið...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Forseti og siðferði

Í samfélögum Vesturlanda nú á dögum eru tvær valdamiðstöðvar helstar. Önnur er á vettvangi...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Hvenær vegur maður að…

Þann 30. apríl sl. voru 15 og 16 ára gamlir hælisumsækjendur dæmdir í 1 mánaðar langt óski...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Ný atvinnustefna – framkvæmdum hraðað

Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum hafa skilað áþreifanlegum árangri. Enn dregur ...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 12:25

NASA - hugleiðing

Þegar ég las greinina hans Páls Óskars þar sem hann sagði frá því búið væri að segja upp s...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / Við mótum framtíðina