Lífið

Við erum ekki að deita

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Leikkonan Laura Prepon segist ekki vera að deita stórleikarann Tom Cruise en sögusagnir þess efnis hafa verið afar háværar síðustu vikur.

„Það er svo fyndið að fólk bara býr til hluti þegar það veit ekki sannleikann. Ég er greinilega að deita Tom Cruise akkúrat núna. Hann vill ekki að ég leiki í Orange is the New Black því ég leik lesbíu og er meðlimur Vísindakirkjunnar. Það er ekki rétt,“ segir leikkonan í viðtali við vefsíðuna She Knows.

Tom hefur ekkert deitað síðan hann skildi við leikkonuna Katie Holmes árið 2012. Laura hætti með Christopher Masterson, bróður Danny Masterson sem lék með Lauru í That '70s Show, árið 2007.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×