Glamour

Victoria Beckham verður heiðruð af Elísabetu Bretlandsdrottningu

Ritstjórn skrifar
Victoria Beckham tekst á við nýja árið með stæl.
Victoria Beckham tekst á við nýja árið með stæl. Mynd/Getty
Fjölmiðlar í Bretlandi halda því fram að Victoria Beckham sé á lista yfir þá sem verða heiðraðir af drottningunni á nýársdag. Athöfnin kallast OBE í daglegu tali, eða Order of the British Empire. Sagt er að hún hafi tilkynnt fjölskyldu sinni um tilnefninguna núna um jólin. Það hefur farið fyrir brjóstið á mörgum íhaldssömum Bretum en allir þeir sem fá tilnefningu verða að sverja þess eið að þegja yfir henni þangað til að Elísabet Bretadrottning tilkynnir hana. Drottningin hefði átt að segja frá tilnefningu Beckham á morgun.

Þrátt fyrir allan ruglinginn yrði þetta afar mikill heiður fyrir Victoriu enda hefur hún unnið hörðum höndum við að byggja upp sitt eigið tískuveldi á seinustu árum. Hún hefur einnig verið örlát við ýmis góðgerðarmál í gegnum tíðina.

Eiginmaður hennar, David Beckham, hlaut sama heiður árið 2003. Þá stóð Victoria við hlið hans en það má fastlega búast við því að hann muni standa við hlið hennar þegar hún hlýtur tilnefninunga um helgina.  

David Beckham hlaut sama heiður fyrir 13 árum síðan, árið 2003.





×