Glamour

Victoria Beckham kann að gera grín af sjálfri sér

Ritstjórn skrifar
Það er gott að hafa húmor fyrir sjálfum sér.
Það er gott að hafa húmor fyrir sjálfum sér. Mynd/Getty
Þrátt fyrir að Victoria Beckham sé fyrir að hafa áður verið í vinsælustu stúlknahljómsveit allra tíma, reki sitt eigið fatamerki og sé gift frægasta fótboltamanni allra tíma þá er hún einnig fræg fyrir að brosa nánast aldrei. 

Victoria hefur áður sagt að hún brosi að innan. Henni finnist ekki eiga við að brosa þegar hún klæðist fínum fötum, að hún skuldi tískubransanum að brosa ekki. 

Þess vegna eiga nýju bolirnir sem hún nú framleiðir afar vel við. Beckham selur þá undir sínu eigin merki, Victoria Beckham, en þeir kosta aðeins 150 dollara. Hægt er að nálgast bolina hér. 






×