Glamour

Victoria Beckham hannar fyrir Target

Ritstjórn skrifar
Victoria Beckham er ansi fjölhæf.
Victoria Beckham er ansi fjölhæf. Mynd/Getty
Victoria Beckham tilkynnti í nótt að hún muni fara í samstarf við bandarísku verslunarkeðjuna Target. Hún bætist í hóp hönnuða sem hafa hannað litlar fatalínur fyrir keðjuna en það hefur ávallt slegið í gegn hjá viðskiptavinunum. 

Samkvæmt tilkynningu Victoriu mun línan lenda í búðuð í apríl á næsta ári. Þar segir einnig að fatalínan sé innblásin af nýjustu vorlínu hennar sem hún sýndi í New York í september. Þannig fá aðdáendur að komast aðeins nær lúxus lífstíl hennar án þess að þurfa að borga fyrir það annan handlegginn. 






×