Glamour

Victoria's Secret tískusýning verður haldin í París þetta árið

Ritstjórn skrifar
Victoria's Secret englarnir ganga tískupallinn í París þetta árið.
Victoria's Secret englarnir ganga tískupallinn í París þetta árið. Myndir/Getty
Hin árlega Victoria's Secret tískusýning hefur ávallt haldið vel í hefðirnar. Þar má sjá frægustu fyrirsætur heimsins ganga tískupallinn í skrautlegum nærfötum og þá oft með englavængi á bakinu. Sýningarnar hafa einnig alltaf verið í Bandaríkjunum fyrir utan eitt skiptið, árið 2014, þegar hún var haldin í London. 

Nú hefur undirfatarisinn ákveðið að breyta aftur til með því að halda sýninguna í París. Sýningin fer iðulega fram í nóvember á hverju ári og er svo sýnd í sjónvarpinu í byrjun desember. 

Þetta árið verður aðal engillinn, Candice Swanepoel, ekki á svæðinu en hún eignaðist nýlega sitt fyrsta barn. Ekki er staðfest hvort að þær Gigi Hadid og Kendall Jenner muni ganga pallinn aftur, en þær tóku þátt í fyrsta sinn í fyrra. 










×