Lífið

Victoria's Secret lofar fullkomnum líkama

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Undirfatarisinn Victoria's Secret er afar umdeildur í Bretlandi þessa dagana eftir að hann birti auglýsingu í breskum verslunum og á heimasíðu sinni. Í auglýsingunni sem um ræðir er hinum fullkomna líkama lofað og sjást léttklæddar fyrirsætur á myndinni klæddar í undirföt frá fyrirtækinu.

Orðið Líkami eða Body er í gæsalöppum í auglýsingunni og á að vera grín en viðskiptavinum mislíkar þetta mjög. Margir hafa brugðið á það ráð að gagnrýna fyrirtækið á samfélagsmiðlum en einnig er búið að hefja undirskriftasöfnun á vefsíðunni Change. Er farið fram á að Victoria's Secret biðjist afsökunar en um hádegisbilið í dag voru tæplega þrjú þúsund manns búnir að skrifa undir.

Talsmenn Victoria's Secret hafa ekki tjáð sig um þessar deilur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×