Fótbolti

Victor skoraði mínútu eftir að hann kom inn á sem varamaður

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Victor var ekki lengi að koma boltanum í markið eftir að hann kom inn á sem varamaður.
Victor var ekki lengi að koma boltanum í markið eftir að hann kom inn á sem varamaður. vísir/getty
Guðlaugur Victor Pálsson skoraði mark Esbjerg í 2-1 tapi fyrir Viborg í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Victor kom inn á sem varamaður á 86. mínútu og aðeins mínútu síðar skallaði hann boltann í netið og minnkaði muninn í 2-1.

Þetta var annað mark Victors fyrir Esbjerg en hann skoraði eitt mark á síðasta tímabili.

Esbjerg hefur farið skelfilega af stað í dönsku deildinni á tímabilinu og er án stiga eftir fyrstu þrjá leikina.

Victor hefur leikið tvo af þremur leikjum Esbjerg á tímabilinu en hann var í byrjunarliðinu og lék allan leikinn þegar liðið tapaði 4-0 fyrir Bröndby í 1. umferðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×