Fótbolti

Victor í liði umferðarinnar

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Victor í baráttunni í leik Esbjerg og Randers á föstudaginn.
Victor í baráttunni í leik Esbjerg og Randers á föstudaginn. vísir/getty
Guðlaugur Victor Pálsson er í liði umferðarinnar hjá Tipsbladet fyrir frammistöðu sína í leik Esbjerg og Randers í dönsku úrvalsdeildinni á föstudaginn.

Victor lék allan tímann á miðjunni hjá Esbjerg og þótti standa sig vel.

Victor hefur leikið átta af níu leikjum Esbjerg í deildinni, þar af sjö í byrjunarliði, og skorað eitt mark.

Hann kom til Esbjerg í fyrra en meiddist illa skömmu eftir komuna til Danmerkur og missti af stærstum hluta síðasta tímabils.

Illa hefur gengið hjá Esbjerg á þessu tímabili en liðið er í þrettánda og næstneðsta sæti deildarinnar með sex stig eftir níu umferðir.

Næsti leikur Esbjerg er gegn Silkeborg á heimavelli í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×