Formúla 1

Vettel vantar nýjan undirvagn

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Vettel mætir á þjónustusvæðið
Vettel mætir á þjónustusvæðið Vísir/Getty
Sebastian Vettel mun fá nýjan undirvagn fyrir spænska kappaksturinn. Hann hefur átt í vandræðum hingað til en Red Bull vonar að nýr undirvagn hjálpi fjórfalda heimsmeistaranum.

Vettel hefur ekki tekist að sýna sama hraða og liðsfélagi hans, Daniel Ricciardo í tímatökum og keppnum á tímabilinu.

Christian Horner liðsstjóri Red Bull sagði í upphafi tímabils að munurinn lægi í uppstillingu bílsins. Helmut Marko segir að vandinn felist í undirvagni bílsins.

„Við skiljum ekki af hverju Vettel eyddi dekkjunum miklu hraðar en Ricciardo,“ sagði Marko, ráðgjafi Red Bull, eftir kínverska kappaksturinn.

Red Bull verður líklega með nýjan undirvagn á Spáni. Marko telur að Vettel muni snúa aftur til fyrra forms ef hann fær bílinn til að virka.

Ricciardo hefur lokið 3 keppnum af 4 á undan Vettel. Hann var að vísu dæmdur úr keppni í einni þeirra.

Það er athyglisverður árangur fyrir þær sakir að hann er nýr hjá Red Bull liðinu. Vettel hefur þegar unnið fjóra heimsmeistaratitla með Red Bull og ætti því að hafa örlítið forskot.


Tengdar fréttir

Red Bull tapaði áfrýjuninni

Red Bull tapaði málinu sem fór fyrir áfrýjunardómstól Alþjóða akstursíþróttasambandsins í gær. Daniel Ricciardo verður ekki settur aftur í annað sætið sem hann var dæmdur úr í Ástralíu.

Red Bull fyrir rétt

Áfrýjunardómstóll Alþjóða akstursíþróttasambandsins tekur í dag fyrir mál Red bull ökumansins Daniel Ricciardo. Hann var dæmdur úr keppni eftir að hafa lokið keppni í öðru sæti í Ástralíu.

Bjartsýni ríkir hjá McLaren

McLaren-liðið hefur ekki of miklar áhyggjur af slöku gengi í kínverska kappakstrinum. Hvorki Jenson Button né Kevin Magnussen náðu í stig. Liðið er öruggt í vissu sinni um að miklar framfarir séu framundan.

Bílskúrinn: Hvað er að frétta frá Kína?

Lewis Hamilton á Mercedes vann Kínakappasturinn örugglega. Liðsfélagi hans, Nico Rosberg varð annar, Ferrari maðurinn Fernando Alonso varð þriðji. Hvað gerðist og hvað er helst að frétta? Við förum yfir málin í Bílskúrnum, léttu hliðinni á Formúlu 1 hér á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×