Formúla 1

Vettel sleppir væntanlega tímatökunni í Texas

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Vettel mun sennilega sitja hjá og horfa á í tímatökunni á laugardag.
Vettel mun sennilega sitja hjá og horfa á í tímatökunni á laugardag. Vísir/Getty
Sebastian Vettel, fjórfaldur og ríkjandi heimsmeistari í Formúlu 1 segir að líklega muni hann sleppa tímatökunni. Tilgangurinn er að spara nýja vél sem sett verður í bílinn.

Reglurnar kveða á um að nota megi fimm eintök af hverjum hluta vélarinnar. Eftir að sjötta eintakið af einhverjum hlutanna er notað þá er ökumaður færður aftur um 10 sæti á ráslínu.

Red Bull íhugar að taka einn skell og skipta um allt í vél Vettel. Ef af því verður þá mun Vettel þurfa að hefja keppni frá þjónustusvæðinu á sunnudaginn. Þá er engin sérstök ástæða til að taka þátt í tímatökunni og best að spara nýju vélasamstæðuna.

„Ég held að þetta verði staðfest, en já, við verðum að setja aðra vél í á árinu og það verður mjög liklega hér. Augljóslega gekk okkur illa hvað varðar áreiðanleika á fyrri hluta tímabils, það gerðist margt sem hefur leitt okkur í þessa stöðu. Við munum aka á æfingunum til að nýta brautartímann, en við munum einblína á keppnina því gott gengi í tímatöku skiptir engu ef við þurfum hvort eð er að ræsa frá þjónusutsvæðinu,“ sagði Vettel.

„Það má ræða um skylduna til að taka þátt en þegar allt kemur til alls þá verðum við að skipuleggja okkur í þessum aðstæðum með vélarnar. Reglurnar eru eins fyrir alla, auðvitað var það okkur að kenna að vera gráðug í byrun tímabils, ég glímdi við ýmis vandamál tengd áreiðanleika og það fóru margar vélar í súginn,“ bætti Vettel við.

Það verða því væntanlega aðeins 17 bílar sem taka þátt í tímatökunni á laugardag. FIA (alþjóða akstursíþróttasambandið) gæti gripið inn í en ef ekki mun einungis einn bíll detta út í fyrstu lotu á laugardaginn. Enda eru Marussia og Caterham ekki þáttakendur í bandaríska kappakstrinum í ár.


Tengdar fréttir

Caterham má missa af tveimur keppnum

Bernie Ecclestone er tilbúinn að leyfa Caterham liðinu að sleppa tveimur næstu keppnum til að einbeita sér að því að finna kaupendur.

Haas: Fyrstu fimm árin snúast um að komast af

Gene Haas segir að fyrstu fimm árin hjá nýju formúlu 1 liði hans muni snúast um að komast af. Hann ætlar að læra af mistökum annarra nýrra liða í gegnum tíðina.

McLaren með stóra uppfærslu

Eric Boullier, keppnisstjóri McLaren segir að liðið muni mæta til keppni í Abú Dabí með mikið uppfærðan bíl.

Stóru liðin ætla að skaffa litlu liðunum bíla

Bernie Ecclestone segir að samningur sem gerður hefur verið við stærri liðin í Formúlu 1 gæti leitt til þess að þau skaffi minni liðunum bíla. Þetta gæti komið til ef allt stefnir í mikla fækkun keppnisliða.

Bræður vilja bjarga Marussia

Bresk-indverskir bræður, Baljinder Sohi og Sonny Kaushal eru nú í samningaviðræðum við forsvarsmenn Marussia. Þeim virðist vera full alvara í að reyna að bjarga liðinu.

Marussia missir af næstu keppni

Bernie Ecclestone, einráður formúlu 1 hefur staðfest að Marussia muni, ásamt Caterham liðinu missa af bandaríska kappakstrinum næstu helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×