FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ NÝJAST 08:15

Tugmilljónir á flótta um allan heim

FRÉTTIR

Vettel fljótastur í Valencia

Vísir Kappakstur 22. júní 2012 18:31
Vettel hefur unnið kappaksturinn í Valencia  2010 og 2011. Hann er því á góðri leið með að sækja sinn þriðja sigur í röð í höfninni í Valencia.
Vettel hefur unnið kappaksturinn í Valencia 2010 og 2011. Hann er því á góðri leið með að sækja sinn þriðja sigur í röð í höfninni í Valencia. NORDICPHOTOS/AFP

Heimsmeistarinn Sebastian Vettel var fljótastur á seinni æfingum dagsins fyrir kappaksturinn í Valencia á Spáni á sunnudag. Red Bull-liðið notaðist við uppfærðan afturenda bílsins.

Eins og svo oft áður í sumar skilur sekúnta efstu fimmtán að. Það er því mjög erfitt að segja til um það hver muni hrifsa ráspól í tímatökunum á morgun.

Pastor Maldonado var fljótastur á Williams-bíl sínum á fyrri æfingum dagins. Hann náði þó ekki að halda því og endaði þrettándi. Vettel varð annar í þeirri æfingu og aðeins 0,08 sekúntum á eftir Maldonado.

Red Bull-bílarnir líta út fyrir að vera fyrna sterkir í Valencia því Mark Webber, liðsfélagi Vettels, var aldrei langt undan.

Á seinni æfingunni varð Nico Hulkenberg á Force India annar og Kamui Kobayashi þriðji. Þá kom Michael Schumacher og Bruno Senna.

McLaren-menn virðast vera í einhverskonar vandræðum í Valencia því þeir komust ekki á topp 10 í seinni æfingunni og voru aðeins í fjórða og áttunda sæti á þeirri fyrri.

Á sama hátt virðist Felipe Massa ekki ná að fylgja eftir markmiðum sínum um að skáka liðsfélaga sínum Fernando Alonso. Massa var aðeins fjórtándi í fyrri æfingunni og fimmtándi í þeirri seinni.


Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Kappakstur 11. júní 2013 18:25

Vettel framlengdi til 2015

Heimsmeistarinn Sebastian Vettel hefur framlengt samning sinn við Red Bull-liðið í Formúlu 1 til ársins 2015. Vettel hefur unnið þrjá heimsmeistaratitla með liðinu undanfarin þrjú ár. Meira
Kappakstur 09. júní 2013 19:47

Enginn átti séns í Vettel

Heimsmeistarinn Sebastian Vettel hafði ótrúlega yfirburði í Montréal í Kanada í dag þegar Formúlu 1 kappakstuirnn fór þar fram. Vettel ræsti af fremsta rásstað og lét forystuna aldrei af hendi. Meira
Kappakstur 08. júní 2013 18:16

Vettel stal ráspól í Kanada

Heimsmeistarinn Sebastian Vettel á Red Bull stal ráspólnum af Mercedes-mönnum í Kanada nú rétt í þessu þegar síðastu lota tímatökunnar þar lauk. Lewis Hamilton verður annar ár ráslínu á undan Valteri ... Meira
Kappakstur 08. júní 2013 16:02

Á von á barni í september

Williams-ökuþórinn Pastor Maldonado og kærasta hans Gaby eiga von á sínu fyrsta barni í september. Áhugamenn um Formúlu 1 kannast kannski við Gaby enda er hún fastagestur á öll mót og fylgist með sínu... Meira
Kappakstur 05. júní 2013 22:00

Brawn: Hamilton þarf bara smá tíma

Keppnistímabil Lewis Hamilton hefur ekki byrjað neitt sérstaklega vel hjá Mercedes í ár. Hann hefur jafnan klárað mótin á eftir liðsfélaga sínum Nico Rosberg og oftast verið hægari en hann í tímatökum... Meira
Kappakstur 05. júní 2013 19:00

Slow motion í Grikklandi

Það er tilkomumikið að fylgjast með reyndum hæfileikamönnum stýra sérsmíðuðum og ógnarkraftmiklum bílum í gegnum beygjur. Sumir bókstaflega lifa fyrir það. Aðrir tengja ekki við það. Meira
Kappakstur 30. maí 2013 23:00

Williams verður með Mercedes-vélar 2014

Williams-liðið í Formúlu 1 verður með Mercedes-vélar á næsta ári. Þetta var staðfest í dag. Williams hefur verið drifið af Renault síðan 2012 eftir að hafa verið í vélavandræðum með Cosworth. Meira
Kappakstur 28. maí 2013 13:45

Kimi útskýrir hvernig skal vinna nakinn í heitum potti

Boðskortið á snekkjuna hans Kimi Raikkönen í Mónakó virðist ekki hafa tilgreint æskilegan klæðnað því þegar félagar hans frá Finnlandi komu í heimsókn höfðu einhverjir gleymt sundskýlunni. Meira
Kappakstur 26. maí 2013 22:00

Rannsaka gróft brot á æfingareglum

Keppnislið Red Bull og Ferrari í Formúlu 1 eru mjög óánægð með leynidekkjaprófanir Pirelli og Mercedes eftir kappaksturinn á Spáni. Enginn vissi að prófanirnar færu fram, ekki einu sinni FIA sem ranns... Meira
Kappakstur 26. maí 2013 19:00

Maldonado: Chilton er hættulegur

Pastor Maldonado slapp með skrekkinn þegar hann gat gengið frá hörðum árekstri við vegriðið í Mónakó dag. Í kjölfar slyssins var mótið stöðvað tímabundið á meðan hægt var að gera við öryggisveggi. Meira
Kappakstur 26. maí 2013 17:45

Grosjean refsað fyrir áreksturinn

Romain Grosjean, frakkinn ungi hjá Lotus, verður færður aftur um tíu sæti á ráslínu í Kanada eftir tvær vikur. Hann hlýtur þessa refsingu fyrir að hafa ekið aftan á Daniel Ricciardo á Toro Rosso í Món... Meira
Kappakstur 26. maí 2013 17:04

Massa sendur heim af sjúkrahúsi

Felipe Massa hefur verið sendur heim af sjúkrahúsinu í Mónakó eftir að hafa verið ekið þangað til frekari skoðunar vegna slyss í kappakstrinum í dag. Meira
Kappakstur 26. maí 2013 14:44

Rosberg vann Mónakó 30 árum á eftir pabba

Nico Rosberg, ökumaður Mercedes-liðsins í Formúlu 1, vann Mónakókappaksturinn í dag. Hann leiddi mótið frá fyrsta hring og hélt forystunni örugglega allt mótið. Keke Rosberg, pabbi Nico, vann mótið fy... Meira
Kappakstur 25. maí 2013 16:22

Ætlar að halda með með Bayern í kvöld

Nico Rosberg, ökumaður Mercedes-liðsins í Formúlu 1, ætlar að halda með Bayern Munchen í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í kvöld. Bayern mætir Borussia Dortmund á Wembley í leik um eftirsóttasta titi... Meira
Kappakstur 25. maí 2013 13:03

Rosberg á ráspól í þriðja skiptið í röð

Nico Rosberg verður fremstur á ráslínu í Mónakókappakstrinum á morgun. Hann var fljótastur umhverfis götubrautina þröngu í tímatökunum sem lauk nú rétt í þessu. Meira
Kappakstur 24. maí 2013 21:30

Prost: 2014 verður meira krefjandi fyrir ökumenn

Reglubreytingar næsta árs munu skapa erfiðar og flóknar aðstæður fyrir Formúlu 1-ökumenn að mati Alain Prost, fjórfalds heimsmeistara í formúlunni. Prost var á sínum tíma kallaður "Prófessorinn“... Meira
Kappakstur 24. maí 2013 19:30

Button: McLaren betri í Mónakó

McLaren-ökuþórinn Jenson Button segir bíl sinn standa betur að vígi í Mónakó en á öðrum kappakstursbrautum. Ástæðan sé sú að í Mónakó er keppt á hægri götubraut. Meira
Kappakstur 23. maí 2013 14:51

Rosberg langfljótastur í Mónakó

Þjóðverjinn Nico Rosberg á Mercedes var langfljótastur á æfingum fyrir kappaksturinn í Mónakó sem fram fer um helgina. Hann var einnig fljótastur í morgun. Liðsfélagi hans Lewis Hamilton varð næstfljó... Meira
Kappakstur 18. maí 2013 19:00

McLaren verður með Honda-vélar 2015

McLaren-liðið í Formúlu 1 mun knýja bíla sína með Honda-vélum frá árinu 2015. McLaren hefur verið með Mercedes-vélar síðan 1995 og átti þýski bílaframleiðandinn hlut í liðinu þar til nýverið. Meira
Kappakstur 16. maí 2013 06:15

Loeb: Kubica getur gert betur en Raikkönen

Sebastien Loeb, nífaldur heimsmeistari í rallý, segir Pólverjan Robert Kubica geta náð mun betri árangri í rallý en finnanum Kimi Raikkönen tókst. Kubica getur jafnvel barist um titilinn í heimsmeista... Meira
Kappakstur 15. maí 2013 06:00

Lotus: Ósanngjarnt að breyta dekkjum

Yfirmenn Lotus-liðsins í Formúlu 1 segja það væri ósanngjarnt gagnvart þeim liðum sem hafa náð árangrí með Pirelli-dekkin að breyta gúmmíblöndunni. Pirelli íhugar að gera breytingar fyrir breska kappa... Meira
Kappakstur 14. maí 2013 06:00

McLaren hafnar ásökunum um liðsskipanir

McLaren-liðið í Formúlu 1 hafnar því að Sergio Perez hafi verið beðinn um að taka því rólega í spænska kappakstrinum og berjast ekki við Jenson Button undir lokin. Ökumennirnir börðust af kappi í Bare... Meira
Kappakstur 14. maí 2013 05:00

Eigandi Red Bull segir F1 ekki snúast um keppnina lengur

Dietrich Mateschitz, eigandi Red Bull-liðsins í Formúlu 1, er mjög harðorður þegar hann talar um áhrif Pirelli-dekkjanna á kappaksturinn í ár. Liðið hans hefur undanfarið þurft að sætta sig við verri ... Meira
Kappakstur 12. maí 2013 15:02

Alonso vann sannfærandi sigur á heimavelli

Spánverjinn Fernando Alonso, ökumaður Ferrari-liðsins í Formúlu 1, vann sannfærandi sigur í kappakstrinum á Spáni í dag. Alonso hefur ekki unnið í Barcelona síðan árið 2006 og voru heimamenn því himin... Meira
Kappakstur 11. maí 2013 13:25

Rosberg og Hamilton fremstir á Spáni

Mercedes-liðið mun ræsa báða bílana sína á fremstu tveimur rásstöðunum í spænska kappakstrinum á morgun. Nico Rosberg náð ráspól í tímatökunum og Lewis Hamilton varð annar. Heimsmeistarinn Sebastian V... Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Sport / Kappakstur / Vettel fljótastur í Valencia
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000