Formúla 1

Vettel: Það var of kalt fyrir okkur

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Rosberg, Hamilton og Vettel voru þrír fljótustu mennirnir í Mónakó í dag.
Rosberg, Hamilton og Vettel voru þrír fljótustu mennirnir í Mónakó í dag. Vísir/Getty
Lewis Hamilton náði einum mikilvægasta ráspól tímabilsins í Formúlu 1. Hver sagði hvað eftir tímatökuna?

„Ég er mjög kátur með þetta, sérstaklega þar sem morguninn var ekki eins og best verður á kosið. Það er því enn skemmtilegra að ná rásól eftir það. Það er svo mikið eftir á morgun, þrátt fyrir mikilvægan ráspól er verkið ekki hálfnað ennþá. Ég hlakka til morgundagsins en veit að hann verður erfiður.“ sagði Hamilton

„Ég átti andstæðan dag við Lewis, ég var á góðu róli í morgun en átti svo ekkert sérstaka tímatöku. Ég var að reyna að gefa allt í síðasta hringinn en svo gerði ég mistök,“ sagði Nico Rosberg.

„Ég er frekar sáttur við niðurstöðuna. Það var of kalt fyrir okkur í dag. Það voru allir í vandræðum með að ná hita upp í dekkjunum sem er skrýtið þar sem þetta eru ofurmjúku dekkin,“ sagði Sebastian Vettel.

Ferrari virðist ganga betur í heitari keppnum þar sem dekkjahiti og brautarhiti er talsvert hærri en hann var í dag.

Button átti ágætan dag en var óheppinn og hefði getað orðið hluti af þriðju lotunni án óheppninnar.Vísir/Getty
„Það er gott að hafa fremstu rásröðina fyrir okkur. Ég trúi ekki mikið á tölfræðina en þetta er yfirleitt góður staður til að hefja keppni á morgun,“ sagði Toto Wolff, keppnisstjóri Mercedes.

„Það gæti verið að við hverfum aftur til baka í sex gíra bíla með hærri vélarsnúning. Þá mun hávaðinn aukast aftur,“ sagði Niki Lauda.

„Báðir ökumennirnir náðu öllu sem hægt var út úr bílunum í dag. Þessi braut var alltaf okkar besti möguleiki að ná góðri niðurstöðu. Verðlaunasæti á morgun er draumurinn,“ sagði Christian Horner, liðsstjóri Red Bull.

„Ég vil ekki hljóma niðurlútur en ég hefði átt að vera þriðji. En fjórða og fimmta sæti er góð niðurstaða. Jafnvægið í bílnum var fínt en dekkin hitnuðu bara ekki. Við reyndum allt, en ekkert hjálpaði okkur að ná hita í dekkin,“ sagði Daniel Ricciardo sem ræsir fjórði á morgun.

„Ég hefði náð í þriðju lotu ef ég hefði ekki fengið á mig gulu flöggin. Þetta var bara óheppni, en ég ræsi 11. á morgun eftir að Grosjean tekur út sína refsingu, sem er fínt en það hefði verið gaman að komast í þriðju lotu,“ sagði Jenson Button.


Tengdar fréttir

Hamilton: Ég á meira inni

Lewis Hamilton sýndi hvað hann getur á seinni æfingu gærdagsins. Hann var 0,7 sekúndum á undan liðsfélaga sínum hjá Mercedes, Nico Rosberg.

Hamilton finnst ótrúlegt að geta náð Senna

Lewis Hamilton, ríkjandi heimsmeistari í Formúlu 1 segir það ótrúlega tilfinningu að nálgast þá mögnuðu tölfræði sem Ayrton Senna náði á sínum ferli.

Lewis Hamilton á ráspól í Mónakó

Lewis Hamilton á Mercedes náði sínum fyrsta ráspól í Mónakó. Liðsfélagi hans Nico Rosberg varð annar en átti ekkis var. Sebastian Vettel á Ferrari varð þriðji.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×