Formúla 1

Vettel: McLaren getur náð sér á strik á næsta ári

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Sebastian Vettel og Fernando Alonso bera saman bækur sínar.
Sebastian Vettel og Fernando Alonso bera saman bækur sínar. Vísir/Getty
Ferrari ökumaðurinn Sebastian Vettel er viss um að slakt gegni McLaren liðsins taki enda. Fjórfaldi heimsmeistarin telur líklegt að McLaren verði í titilbaráttu á næsta tímabili.

McLaren hefur átt erfitt tímabil sem aðallega hefur verið sök Honda vélarinnar. Honda skaffar McLaren vélar en þær eru ekki eins öflugar og endingagóðar og vélar Ferrari, Mercedes eða jafnvel Renault sem þykir helst til máttlaus.

„Ég tel að liðið hafi möguleikann á að verða samkeppnishæft 2016. McLaren er eitt stærsta liðið í Formúlu 1. Að mínu mati áttu þeir besta bílinn 2012,“ sagði Vettel.

„Honda hefur getuna til að skaffa þeim afar öfluga vél, svo ég trúi því að þeir rati aftur í toppbaráttuna fljótlega, bætti Vettel við.

Fernando Alonso, ökmaður McLaren tekur í sama streng en bætir við að framfarir muni halda áfram út yfirstandandi tímabil.

„Við höfum reynsluna frá öllum hliðum til að gera þetta erfiða tímabil eins stutt og hægt er, ég er ánægður með framvindu mála,“ sagði Alonso.

„Við byrjuðum kannski aðeins of langt frá öllum öðrum, en við erum að nálgast. Því miður sáust framfarirnar ekki á Spa og munu ekki sjást á Monza en við sáum þær í Ungverjalandi, þar vorum við nánast alltaf í topp 10. Vonandi getum við gert eitthvað svipað í Singapúr eða næstu keppnum. Í þeim keppnum sem eftir eru og á næsta tímabili munu hlutirnir snúast við,“ bætti Alonso við.


Tengdar fréttir

Honda setur markið á Ferrari

Honda ætlar að mæta með talsvert mikið uppfærða vél til Belgíu um helgina. Honda vonast til að hún jafnist nú á við Ferrari vélina.

Renault tekur yfir Lotus í næstu viku

Renault mun klára að taka yfir Lotus liðið í Formúlu 1 í næstu viku. Franski bílaframleiðandinn verður þá orðinn liðseigandi aftur í Formúlu 1.

Bílskúrinn: Baráttan í Belgíu

Lewis Hamilton er nú búinn að tryggja sér ráspólsbikar ársins. Óvæntir atburðir áttu sér stað í belgíska kappakstrinum.

Whiting: Honda misnotaði reglurnar

Regluvörður Alþjóða akstursíþróttasambandsins, FIA, Charlie Whiting segir McLaren-Honda hafa misnotað reglurnar um refsingar fyrir ofnotkun vélaíhluta í Belgíu.

McLaren notar tvær vélar í hvorn bíl á Spa

McLaren mætti með splunkunýjar Honda vélar til Belgíu. Liðið ætlar að beita sérstakri aðferð um helgina. Tvær nýjar vélar fara í hvorn bíl um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×