Formúla 1

Vettel: Akstursstíll skýrir lélegt gengi

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Vettel um borð í RB10. Tímabilið hjá þeim hefur ekki verið auðvelt.
Vettel um borð í RB10. Tímabilið hjá þeim hefur ekki verið auðvelt. Vísir/Getty
Ríkjandi heimsmeistari í Formúlu 1, Sebastian Vettel segir að ósamræmi milli aksturseiginleika RB10 bílsins og eigin akstursstíls útskýra hvers vegna illa hefur gengið í ár.

Liðsfélagi hans, Daniel Ricciardo hefur unnið þrjár keppnir á tímabilinu. Vettel hefur hins vegar einungis þrisvar komist á verðlaunapall í ár. Hann náði sínum besta árangri í ár með öðru sæti í Singapúr.

„Í hvert skipti sem ég reyni að fara hraðar, gerist ekkert. Ég held að það séu eiginleikar bílsins í samblandi við niðurtogið sem við höfum. Kannski gefur bíllinn mér ekki enn það sem ég vil á vissum köglum í beygjum,“ segir fjórfaldi heimsmeistarinn um RB10.

„Þetta er ekki afsökun, vegna þess að þrátt fyrir allt á ég að ná öllu út úr bílnum. Við höfum náð að bæta bílinn mikið en það er margt sem enn er hægt að gera betur,“ sagði Vettel.

Red Bull náði örðu og þriðja sæti í Singapúr. Liðið situr nú í öðru sæti bílasmiða og virðist ekki ætla að fara þaðan. Langt er í næstu lið í báðar áttir.


Tengdar fréttir

Horner: Margar ástæður fyrir erfiðleikum Vettel

Liðsstjóri Red Bull liðsins í Formúlu 1, Christian Horner segir margar þætti valda Vettel erfiðleikum í ár. Þar á meðal sé staðreyndin að Sebastian Vettel er ekki að berjast um heimsmeistaratitilinn.

Hamilton vann í Singapúr - Rosberg kláraði ekki

Lewis Hamilton á Mercedes vann kappaksturinn í Singapúr. Hann náði þar með forystu í stigakeppni ökumanna. Sebastian Vettel varð annar og liðsfélagi hans hjá Red Bull, Daniel Ricciardo varð þriðji.

Hamilton á ráspól í Singapúr

Lewis Hamilton á Mercedes náði ráspól í Singapúr, liðsfélagi hans Nico Rosberg varð annar. Daniel Ricciardo á Red Bull varð þriðji.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×