Glamour

Vetrarúlpan í ár?

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Nú er fyrsti snjórinn fallinn í höfuðborginni og því kominn tími að draga fram vetrarklæðin af alvöru. Mögulega er þó nóg að fara bara eina ferð í geymsluna?

Ef marka má hinn nýkrýnda konung tískuheimsins, Demna Gvasalia, yfirhönnuð Balenciaga og stofnanda Vetements, þá eru þetta heitustu vetrarjakkar ársins. Kunnuglegir ekki satt? 

Þeir minna óneitanlega á vetrartískuna undir lok níunda áratugsins, bæði sniðið og litirnir. Spurning um að fara að grafa í geymslum bæjarins, ef ekki til að nota sjálfur þá til að selja hæstbjóðanda ... þetta er hipsteraflík ársins að mati Glamour. 






×