Vetrarfríi Populus tremula lokið 25. ágúst 2006 19:00 Akureyrarvaka í listagilinu Populus tremula er til húsa í kjallara Listasafns Akureyrar og verður með fjölbreytta dagskrá á Akureyrarvöku.
Vetrarstarf Menningarsmiðjunnar Populus tremula hefst á Akureyrarvöku á morgun. Starfið í vetur, þann þriðja sem smiðjan er opin, mun að venju vera sambland af tónlist, myndlist, bókmenntum og jafnvel leiklist, en Populus tremula er til húsa í kjallaranum á Listasafni Akureyrar. "Við höfum sett okkur það að byrja á Akureyrarvökunni og þegar kemur fram í mánaðamót maí/júní þá lokum við bara og leyfum Listasumri að eiga sumarið," segir Sigurður Heiðar Jónsson einn meðlima menningarsmiðjunnar. Populus tremula er áhugamannafélag og hagnaðarsjónarmið ráða þar ekki för. Félagið býður gestum og listamönnum að sýna sig og sjá aðra án þess að greiða fyrir það. "Þetta er félagsskapur nokkurra manna, áhugamanna um menningu og listir, sem allir hafa verið viðloðandi þetta gil í mörg ár," segir Sigurður. Dagskráin á morgun er fjölbreytt, en þar er bæði boðið upp á myndlist og tónlist. "Við byrjum klukkan fjórtán með myndlistarsýningu Kristjáns Steingríms sem er opin frá 14 til 17. Síðan stendur hún bara út helgina því allar sýningarnar okkar eru helgarsýningar." Tvennir tónleikar eru svo klukkan 21.30 og 23.30. "Dean Ferrell verður með tónleika í svona rúman klukkutíma. Þá gerum við smá hlé til að taka til áður en Baldvin Ringsted, sem kallar sig Bela, hefur sína tónleika." Veturinn verður líflegur eins og vera ber hjá Populus tremula. "Þetta er bara upphafsverkefnið. Dagskráin fyrir veturinn er að öðru leyti ekki komin saman en það er komið fullt á blað sem eftir er að dagsetja," segir Sigurður Heiðar.
Menning Mest lesið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Lífið Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Sjá meira