Menning

Vetrarferðin – verk fullt af fegurð og trega

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Snorri og Gunnar hafa æft Vetrarferðina frá því á síðasta hausti, hér heima hjá Snorra.
Snorri og Gunnar hafa æft Vetrarferðina frá því á síðasta hausti, hér heima hjá Snorra. Vísir/GVA
Gunnar Guðbjörnsson óperusöngvari og Snorri Sigfús Birgisson píanóleikari flytja Vetrarferð Schuberts í Hannesarholti í dag klukkan 16:00.

Í fyrstu stóð hér að tónleikarnir byrjuðu klukkan 17:00, sem er ekki rétt.

„Þetta er eitt áhrifamesta verk tónbókmenntanna, fullt af fegurð og trega,“ segir Gunnar.  „Ljóðmælandinn, Wilhelm Müller,  fjallar um óendurgoldna ást og vonleysi og það sem gerir verkið svo tilfinningaríkt er að bæði Müller og Schubert skrifa Vetrar­ferðina á sínum lokametrum, þeir eru báðir að ljúka sinni ferð og það finnst í gegn.“

Gunnar kveðst hafa flutt Vetrarferðina með Jónasi Ingimundarsyni píanóleikara árið 2000 og ári síðar í hljómsveitarútsetningu Hans Zender­ í París með Orchestre Nati­onal d’Ile de Paris. Þá hafi hann flakkað með verkið í borgirnar kringum París.

„En mig langaði alltaf að syngja það aftur og til þess skapaðist tækifæri þegar við Snorri byrjuðum að vinna saman á síðasta ári í Söngskóla Sigurðar Demetz, þá fórum við að taka lag og lag.“

Flutningurinn tekur klukkutíma og kortér og er án hlés, að sögn Gunnars. „Það krefst talsverðs styrks að syngja 24 lög með fullri einbeitingu í beinni línu við áheyrendur en æfingarnar hafa gengið mjög vel.“

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 25. mars 2017






Fleiri fréttir

Sjá meira


×