Innlent

Vestmannaeyingar harma fækkun á flugvellinum

Sveinn Arnarsson skrifar
Vestmannaeyjar eru nokkuð háðar greiðum samgöngum við meginlandið.
Vestmannaeyjar eru nokkuð háðar greiðum samgöngum við meginlandið. vísir/pjetur
Eyjamenn mótmæla ákvörðun ISAVIA harðlega að fækka starfsmönnum á flugvellinum í Vestmannaeyjum. Bæjarstjóri Vestmannaeyja segir augljóst að verið sé að skerða þjónustu við íbúa.

„Við Eyjamenn gerum náttúrulega mjög alvarlegar athugasemdir við þær uppsagnir sem kynntar hafa verið og fela í sér að starfsmönnum ISAVIA við flugvöllin í Eyjum fækkar úr fimm í þrjá,“ segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum. „Það er enda einsýnnt að með ákvörðuninni er ríkið enn og aftur að ráðast að innviðum Vestmannaeyja og í raun landsbyggðarinnar allrar.“

„Við á landsbyggðinni stöndum hreinlega frammi fyrir því að með annarri hendinni flytur ríkið alla þjónustu, jafnvel heilbrigðisþjónustu, til Reykjavíkur og með hinni dregur það úr samgöngum sem torveldar okkur að nota nauðsynlega innviði. Þetta nær náttúrulega ekki nokkurri átt,“ bætir Elliði við.

Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi ISAVIA segir ástæður fækkunina vera Landeyjahöfn. Eftir að Landeyjahöfn var opnuð sumarið 2010 hafi fjölda farþega hrunið úr 55 þúsund niður í 26 þúsund. Á árinu 2016 hafi farþegar einungis verið 19 þúsund. „Landeyjahöfn hefur miið að segja um fækkun farþega í flugi til eyja. Með þessum aðgerðum erum við að færa starfsmannafjölda að öðrum flugvöllum með sama farþegafjölda,“ segir Guðni. „Hinsvegar er vilji okkar að fjölga farþegum um völlinn og erum í viðræðum við Vestmannaeyjabæ um mögulegt samstarf þar.

Elliði vonar að ákvörðuninni verði snúið við. „Ákvörðunin er mannanna verk og við ætlumst til að þingmenn kjördæmisins með stuðningi annarra þingmanna vindi ofan af þeirri ógn sem í henni er fólgin eigi síðar en strax.“

Jón Gunnarsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, hafði ekki heyrt af þessari þjónustuskerðingu og gat því ekki tjáð sig um málið þegar eftir því var leitað.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×