Innlent

Verulega brugðið vegna íkveikjunnar í Breiðholti

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Íbúi til tuttugu ára í fjölbýlishúsi í Breiðholti, þar sem kveikt var í í gær, segist óttaslegin og brugðið vegna íkveikjunnar. Málið er enn óupplýst og brennuvarganna leitað.

Aðkoman að Iðufelli 4 og Gyðufelli 10 var ekki skemmtileg í dag. Í gær kviknaði þar í stigagöngum með stuttu millibili, en ljóst þykir að um íkveikju er að ræða.

„Það virðist vera að það hafi verið labbað hérna á milli tveggja stigaganga og kveikt eld í póstkössum í andyri á báðum stöðum,“segir Oddur Hallgrímsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu.

Samkvæmt tilkynningu frá lögreglu í gær vísuðu vitni á tólf ára drengi sem mögulega voru gerendur, og ræddi lögregla við þá og foreldra þeirra. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu í dag er málið óupplýst og brennuvarganna enn leitað. 

Fréttastofa ræddi í dag við íbúa í húsunum var þeim öllum nokkuð brugðið vegna íkveikjunnar, sérstaklega þar sem mikið af börnum eru á svæðinu. Þeirra á meðal er Jóhanna Thorarensen sem hefur búið í Gyðufelli í yfir tuttugu ár. 

„Ég var nú bara ein hér inni í íbúð og vissi ekki af þessu fyrr en ég opnaði hurðina og allt var fullt af reyk. Slökkviliðið benti mér á að fara út á svalir og ég gerði það bara. Þá var komið fólk hérna fyrir ofan að fylgjast með,“ segir hún og segist vera þakklát fyrir að ekki hafi verið kveikt í um nótt.

„Mér líður illa með þetta. Sérstaklega ef að svona hefði skeð að nóttu til, þá spyr maður ekkert um afleiðingarnar. Hér er fullt af börnum og manni leið ekkert vel að vita af þeim lokuðum inni í íbúðum og allt fullt af reyk,“ segir Jóhanna

Lögregla vildi ekki gefa um frekari upplýsingar um málið en að það væri enn í rannsókn.

„Ég ætla bara að vona að þeir finnist og að það verði tekið á þessum málum. Ekki bara að það sé allt í lagi af því að það varð ekki slys á fólki, en hvenær verður það þegar svona er haft í frammi?,“ segir Jóhanna Thorarensen. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×