Innlent

Veruleg röskun á flugi

Óli Kr. Ármannsson skrifar
Vegna yfirvinnubanns flugumferðarstjóra var ekki þjónusta við annað en neyðarflug í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í nótt.
Vegna yfirvinnubanns flugumferðarstjóra var ekki þjónusta við annað en neyðarflug í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í nótt. Fréttablaðið/Stefán
Flug lá niðri á Keflavíkurflugvelli frá klukkan níu í gærkvöldi til sjö í morgun vegna yfirvinnubanns flugumferðarstjóra. Það hefur staðið frá sjötta þessa mánaðar.

„Það var náttúrlega vitað að það væri tímaspursmál eftir að yfirvinnubannið byrjaði hvenær þessi staða myndi koma upp,“ segir Sigurjón Jónasson, formaður Félags íslenskra flugumferðarstjóra.

Í tilkynningu Isavia ohf., sem rekur flugvellina hér á landi, kemur fram að þjónusta í Keflavík hafi takmarkast við sjúkra- og neyðarflug.

„Ástæðan er að tveir flugumferðarstjórar sem áttu að vera á vaktinni í nótt eru veikir og vegna yfirvinnubanns fást ekki flugumferðarstjórar til afleysinga,“ segir þar. Áhrifin nái til 24 flugferða, annars vegar miðnæturflugs til og frá Evrópu og svo morgunflugs frá Norður-Ameríku til Keflavíkurflugvallar og frá Keflavíkurflugvelli til Evrópu. „Að auki mun þetta hafa umtalsverð áhrif til röskunar á áætlun flugfélaganna í framhaldinu.“

Sigurjón Jónasson, formaður Félags íslenskra flugumferðarstjóra
Sigurjón segir viðræðurnar við Isavia og Samtök atvinnulífsins hafa siglt í strand í síðustu viku. Ríkissáttasemjari hefur boðað næsta fund 9. maí, en fyrir honum liggi ekkert sérstakt. Lögboðið sé í kjaradeilum að boðað sé til fundar á minnst hálfs mánaðar fresti. Þá hefur þjálfunarbanni sem flugumferðarstjórar boðuðu í vikunni að tæki gildi 6. maí næstkomandi verið vísað til Félagsdóms.

Þá eru víðar blikur á lofti í kjaraviðræðum sem tengjast flugi. Kjaradeila Félags flugumsjónarmanna er komin á borð ríkissáttasemjara eftir að samningur við Icelandair var felldur í febrúar. Karl Friðriksson, formaður félagsins, segir samninga enn í gangi og ekkert verið ákveðið um aðgerðir þótt þau mál séu í skoðun. Í félaginu séu um 50 manns, en deilan nái bara til starfsmanna Icelandair, sem séu tólf talsins.

„Samningar hafa verið lausir síðan í janúar,“ segir Karl, en Icelandair hafi ekkert boðið umfram hækkanir í svonefndu SALEK-samkomulagi. „Og menn eru ekki sáttir við það.“ Komi til aðgerða flugumsjónarmanna muni þær ná til millilandaflugs og mögulega innanlandsflugs hjá Flugfélagi Íslands.

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu þann 29. apríl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×