Skoðun

Vertu velkominn

Silja Dögg Gunnarsdóttir skrifar
Ég ætla að segja ykkur litla lífsreynslusögu. Hún gerist fyrir tuttugu árum í Austurríki. Ég stundaði þar nám um tíma, í borginni Graz sem er í austurhluta landsins, skammt frá landamærum Ungverjalands. Múrinn hafði fallið fáum árum áður og mikill fjöldi fólks leitaði frá austri til vesturs í von um betra líf.

Ég var upptekin af hinu bráðskemmtilega stúdentalífi og velti lítið fyrir mér aðstæðum Austur-Evrópumanna. Ég var frá Íslandi, fékk alls staðar hlýjar móttökur, og já, var bara nokkuð montin af því að vera Íslendingur. Það þótti þá, og þykir enn, svolítið töff.

Svo var það dag einn að ég fór í litla sérvöruverslun og bauð góðan dag. Talaði þýskuna með hörðum hreim, var alls ekki austurrísk í útliti, hvað þá skandinavísk, með mitt svarta hár. Af útlitinu og hreimnum mátti dæma að ég kæmi „að austan“. Í sakleysi mínu beið ég róleg eftir afgreiðslu og áttaði mig ekki strax á því kuldalega viðmóti sem ég fékk. Eftir dúk og disk fékk ég afgreiðslu og eftir nokkra stund kom fram að ég væri frá Íslandi. Og viti menn! Viðmótið breyttist á svipstundu. Ég fékk bros, almennilegheit og já, framkomu sem allir eiga rétt á að fá; hvernig sem þeir líta út, hvaðan sem þeir koma og hverjir sem þeir eru.

Svona er þá að vera hataður. Svona er þá að vera útlendingur. Þarna lærði ég mína lexíu.

Ég óska engum þess að verða fyrir fordómum. Hvað á fólk með að dæma aðra út frá ytri mælikvörðum? Hver einasta manneskja er einstök.

Aðflutningur erlendra ríkisborgara til Íslands á 21. öldinni er nærri helmingi íbúafjölgunar á Íslandi. Á síðasta ári var hlutfall erlendra ríkisborgara á Íslandi 7,4%. Þess má einnig geta að fjöldi leik- og grunnskólabarna með erlent ríkisfang hefur sjöfaldast á öldinni. Nú hafa 11% leikskólabarna og 6% grunnskólabarna annað móðurmál en íslensku.

Fjölmenningarsamfélag er framtíðin. Við eigum að taka vel á móti fólki sem hér vill búa og og hjálpa því á allan hátt við að aðlagast íslensku samfélagi. Það eykur hagvöxt og síðast en ekki síst auðgar það menningarlífið og víkkar sjóndeildarhring okkar allra.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×