Versti dagur Samfylkingarinnar

Vísir Aðsendar greinar 31. janúar 2012 13:38
Einar Pétur Heiðarsson.
Einar Pétur Heiðarsson.
Einar Pétur Heiðarsson skrifar:
Það hefur ekki alltaf verið auðvelt að vera stuðningsmaður Samfylkingarinnar síðustu fimm árin. Þó svo að baráttumálin og markmiðin séu skýr, aukinn jöfnuður, jafnrétti og réttlæti, umhverfisvernd, efnahagslegur stöðugleiki, innganga í ESB og upptaka evru, svo eitthvað sé nefnt, þá hefur ekki alltaf tekist að fylgja þeim hugsjónum eftir. Í raun er það þó ekki vandamálið. Allir sem fylgjast með stjórnmálum gera sér grein fyrir því að stjórnmál eru leið samninga og sátta. Fáir stjórnmálaflokkar á vesturlöndum hafa kjörfylgi og áhrif til þess að hrinda öllum sínum hugsjónum í framkvæmd. Það er helst að breska kosningakerfið, með sín einmenningskjördæmi, skapi slíkar aðstæður. En jafnvel í því kerfi byggjast stjórnmálin á samningum og málamiðlunum. Flokkarnir eru vissulega færri en samningaviðræðurnar fara þá fram innan flokkanna þar sem hver þingmaður þarf að taka tillit til kjósenda sinna vilji hann tryggja sér áframhaldandi þingsetu.

Það má því öllum vera ljóst að stjórnmál í lýðræðisþjóðfélagi eru enginn einsöngur. Stjórnmál eru kórsöngur og þegar vel tekst til myndar kórinn fallega harmoníu eða samhljóm. Þegar illa gengur minnir söngurinn á kakófóníu.

Það er þó mun algengara að líkja stjórnmálunum við baráttu frekar en við söng. Hugsjónin er söngur en veruleikinn stríð. Á vettvangi stjórnmálanna takast á ólíkir hagsmunir og mismunandi hagsmunamat. Um þetta snýst stjórnmálabaráttan og í þessu ljósi verður að meta átökin á milli Samfylkingarinnar og VG. Þau eru í raun fullkomlega eðlileg.

En aftur að Samfylkingunni og hennar axarsköftum. Frá því vorið 2007, þegar Samfylkingin myndaði verstu ríkisstjórn allra tíma með Sjálfstæðisflokki, hefur hún ítrekað gleymt hugsjónum sínum og hunsað þá staðreynd að veruleiki stjórnmálanna er barátta. Hugsjónin um jöfnuð og réttlæti öllum til handa er vegin og metin eftir því hver á í hlut. En það er alls ekki réttlæti. Það sem aðeins gengur yfir suma en aðra ekki er ekkert réttlæti.

Þegar Samfylkingin sendi einn fulltrúa verstu ríkisstjórnar allra tíma á Íslandi fyrir landsdóm, en hélt hlífiskildi yfir sínum flokksmönnum, þá féll hún á prófinu. Það var versti dagur Samfylkingarinar. Þessi einstaki atburður mun verða minnismerki hennar á þessu kjörtímabili en ekki sá sem hún hugði: að tekist hefði að mynda fyrstu „hreinu vinstri stjórn" á Íslandi. Hverjum er ekki sama um millifyrirsagnir í sögubókum framtíðarinnar?

Stjórnmálaflokkur sem skipar rannsóknarnefnd um orsakir hrunsins en hunsar niðurstöður hennar og hlífir eigin flokksmönnum við afleiðingum gjörða sinna, og kýs þá jafnvel aftur á þing og heldur áfram að treysta þeim fyrir velferð þjóðarinnar, sá stjórnmálaflokkur hefur gleymt þeirri staðreynd að veruleiki stjórnmálanna er barátta. Og enn verri er sá einstaki stjórnmálamaður sem ekki þekkir sinn vitjunartíma í þessu samhengi. Hann vinnur margfalt meira tjón en gagn með setu sinni á Alþingi og grefur undan trúverðugleika þeirra mála sem hann þó telur sig vera að tala fyrir.

Þessi barátta snýst ekki aðeins um orð og gjörðir, hún snýst líka um traust. Hver treystir þeim sem dæmir aðra en hlífir sjálfum sér? Hver kýs flokk sem hann treystir ekki og það jafnvel þó að viðkomandi sé sammála hugsjónum flokksins?

Vissulega hefur Samfylkingin gert margt gott á síðustu árum og ekki hafa verkefnin verið auðveld eða aðstæður góðar. Í raun má segja að henni hafi tekist mjög vel upp við ákaflega erfiðar aðstæður. En hvaða máli skiptir það fyrir framtíð Samfylkingarinnar og framgang þeirra stóru mála sem ná yfir mörg kjörtímabil? Sá árangur verður að engu og verk hennar verða ekki metin að verðleikum ef traustið er ekki til staðar.

Það kemur því vel á vondan að Samfylkingin þurfi að endurnýja kynnin við sín verstu mistök á þessu kjörtímabili. Réttast hefði verið að fara að niðurstöðu rannsóknarnefndar Alþingis og ákæra ráðherrana fjóra. Með óábyrgri málsmeðferð var Samfylkingin að rétta andstæðingum sínum vopnin upp í hendurnar og biðja um að þeim verði beitt gegn henni sjálfri. Það er lítil stjórnkænska.

Einar Pétur Heiðarsson, meistaranemi í alþjóðasamskiptum og verkefnastjórnun.



Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 26. maí. 2012 06:00

Komdu út að leika

Við fögnum Degi barnsins í fimmta sinn á morgun en samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnar frá því...  

Meira
Aðsendar greinar 26. maí. 2012 06:00

Að draga börn fyrir dómstóla

Kristín Völundardóttir, forstjóri Útlendingastofnunar, hvetur til umræðu um hælisleitendur...  

Meira
Aðsendar greinar 26. maí. 2012 06:00

Orð forsetans um "skrautdúkku“

Ólafur Ragnar Grímsson steig fram á svið kosningabaráttunnar nýlega með orðræðu sem um mar...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 14:00

Norðurlönd á norðurskautssvæðinu

Norðurskautssvæðin hafa flust nær miðju heimsstjórnmálanna og munu fá aukið vægi í framtíð...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

"Nýja háskólasjúkrahúsið – kjarni málsins“

Í aðsendri grein Sighvats Björgvinssonar þ. 21. maí 2012 greinir Sighvatur snöfurmannlega ...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Þrír menn og króna

Árið 2006 tókum við hjónin lán fyrir íbúð. Við áttum von á okkar fyrsta barni og fannst áb...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 17:00

1000 andlit MS - að lesa bók með lopavettlinga á höndum

Hefur þú lesandi góður reynt að lesa/fletta dagblaðinu eða bók með lopavettlinga á höndum?...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Fiskveiðistjórnunin. Allan sannleikann, takk!

Ógnandi mynd er nú þrengt inn í þjóðarsálina með auglýsingum og fyrirsögnum í fjölmiðlum u...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Friðun í herkví sveitarfélaga og bænda

Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, segir í fréttaskýringu (Friðlýsing náttúrusvæða)...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Um vald forsetans

Margt bendir til að vandi okkar Íslendinga um þessar mundir sé ekki síður menningarlegur e...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Gulrætur og villandi samanburður

Fréttablaðið birti þann 8. maí sl. grein um framleiðslu ísraelska fyrirtækisins Protalix B...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Ekki var Huang gerður strámaður

Í blaðaviðtali í ágúst í fyrra kynnti Hjörleifur Sveinbjörnsson, yfirþýðandi í Þýðingarmið...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Þegar tunnurnar þagna

Ég er þreyttur á að vera reiður. En samt var eigninni minni stolið ásamt öllu mínu sparifé...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Svar við bréfi Sighvats

Í stuttri grein Sighvats Björgvinssonar í Fréttablaðinu 24. maí sl. þar sem hann þakkar fy...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Þú ert stunginn, það er vont og þú færð engan pening

Á hverjum degi láta um 70 manneskjur það yfir sig ganga að víkja í eina klukkustund frá da...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 16:00

Eru Íslendingar vel menntuð þjóð?

Því er iðulega slegið fram sem sönnu að þrátt fyrir bágan efnahag og erfitt ástand hafi Ís...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 11:48

Óskabarn stjórnvalda: þögull forseti

Það þótti ekki tiltökumál þegar að Viðskiptaráð hreykti sér af því fyrir hrun að stjórnvöl...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Takk, Jóhannes

Ég þakka Jóhannesi Gunnarssyni lækni kærlega fyrir svar hans við grein minni um Landspítal...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Er allur þjófnaður í matvöruverslunum tilkynntur til lögreglu?

Undanfarin ár hefur talsmaður matvöruverslunar mætt reglulega á útvarpsstöðina Bylgjuna og...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Stjórnmálasamtökum er gert mishátt undir höfði

Mikilvægt er í samfélagsumræðunni að sanngirni sé gætt í samanburði á sýnileika stjórnmála...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Spurningar áréttaðar

Í grein hér í blaðinu þann 3ja maí síðastliðinn spurði ég forystu Bændasamtaka Íslands, að...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Kynheilbrigðismál – ekki er ráð nema í tíma sé tekið!

Gagnleg umræða um kynheilbrigðismál hefur verið í fjölmiðlum að undanförnu. Rætt hefur ver...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 11:53

Nokkur orð um Vaðlaheiðargöng

Töluverðar deilur hafa átt sér stað undanfarin misseri varðandi fyrirhugaða framkvæmd Vaðl...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Er þjóðin bótaskyld vegna gjafakvótans?

Núverandi kvótahafar hafa ítrekað smjattað á málsókn gegn ríkinu verði kvótinn innkallaður...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Boðið upp í dansinn

Úr þessum penna hefir margsinnis dropið, að sagnfræðingar framtíðar muni dæma harðast allr...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Sagan af brúnu tunnunni

Ég myndi helst vilja eignast hænur til að breyta matarafgöngunum mínum í egg, en get það e...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Við biðjum Skálholti griða

Sagan segir að Gissur Ísleifsson hafi um aldamótin 1100 gefið Skálholtsland með því skilyr...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Sameinum Neytendastofu og talsmann neytenda

Í byrjun árs 2010 boðaði forsætisráðherra að raunhæft væri að fækka 200 stofnunum ríkisins...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Á nútíminn erindi á Bessastaði?

Frá unga aldri hef ég litið á forsetaembættið sem formlegt embætti, þar sem einungis fína ...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Ferðamenn + viðhald ferðastaða = gistináttaskattur?

Skattlagningarform ferðamannaskatts er ekki í samræmi við markmið samhangandi laga þó að h...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 16:50

Ég hafði val

Í nokkur ár hef ég heyrt málefnaleg rök um þróun handboltans sem og innihaldslausar umræðu...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Sátt í Aserbaídsjan

Borgin Shusha tilheyrði Aserbaídsjan fram til 8. maí 1992, þegar hún var hernumin af Armen...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Ljósnet fyrir neytendur

Síminn hefur nýlega sagt frá því að fyrirtækið hafi hafið annan hluta Ljósnetsvæðingar sem...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Til Heiðu

Ekki hafði ég ætlað mér að standa í ritdeilu en í svari Heiðu Kristínar Helgadóttur (Til k...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Aðbúnaður dýra á Íslandi

23-25. des. sl. var viðtal í Fréttatímanum við Árna Stefán Gunnarsson þar sem hann m.a. tj...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Pólitískt hlutverk forsetans

Andstætt því sem stundum er gefið í skyn eru íslensk stjórnlög að meginstefnu skýr um stjó...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Lína lifir!

Á fundi sínum í Ósló 26. apríl sl. samþykktu norrænu mennta- og menningarmálaráðherrarnir ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Jákvæð samskipti

Einelti er því miður afar alvarlegt samfélagslegt vandamál og sem slíkt er nauðsynlegt að ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Slegist við strámann á Fjöllum

Merkilegur andskoti hvað við erum léleg að ræða málin. Hér er lenska að virða ekki skoðani...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Öflugt sjúkrahús - kjarni málsins

Um þessar mundir er í nágrannalöndum Íslands víða verið að rífa sjúkrahúsbyggingar sem ekk...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Flokkur eða hagsmunasamtök?

Meðan hagsmunasamtök berjast fyrir afmarkaðan hóp manna sem á eitthvað sameiginlegt, berja...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Sérfræðingur að sunnan

Helga Vala Helgadóttir hefur í nýlegu viðtali við Fréttatímann og í grein í Fréttablaðinu ...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Opið bréf til menntamálaráðherra

Nú í vor sóttu foreldrar þroskaskerts drengs á ellefta ári um skólavist fyrir drenginn í K...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 16:10

Stuðningsgrein: Að kveða burt snjóinn

Það blása frískir og fjörugir vorvindar um landið. Æðarfuglinn hreiðrar um sig í Bessastað...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Nýja háskólasjúkrahúsið – kjarni málsins

Umræðan um risabyggingu nýs spítala í miðbæ Reykjavíkur er hafin. Halldór Laxness orðaði u...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Ráðherrann og samræðugenin

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði einkar athyglisverða grein í Fréttablaðið...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Forseti og siðferði

Í samfélögum Vesturlanda nú á dögum eru tvær valdamiðstöðvar helstar. Önnur er á vettvangi...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Hvenær vegur maður að…

Þann 30. apríl sl. voru 15 og 16 ára gamlir hælisumsækjendur dæmdir í 1 mánaðar langt óski...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Ný atvinnustefna – framkvæmdum hraðað

Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum hafa skilað áþreifanlegum árangri. Enn dregur ...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 12:25

NASA - hugleiðing

Þegar ég las greinina hans Páls Óskars þar sem hann sagði frá því búið væri að segja upp s...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / Versti dagur Samfylkingarinnar