Glamour

Versace sakað um mismunum

Ritstjórn skrifar
Versace er ekki í góðum málum.
Versace er ekki í góðum málum. Mynd/Getty
Ítalska tískuhúsið Versace hefur verið kært af fyrrum starfsmanni fyrir mismunun. Christopher Sampino starfaði hjá fyrirtækinu í aðeins tvær vikur áður en honum var sagt upp. Hann segir að fyrsta daginn sinn hafi honum verið kennt að nota orðið D410 ef að svartur viðskiptavinur væri í búðinni. D410 er kóði sem Versace notar yfir svört föt. 

Þegar Christopher sagðist sjálfur vera svartur fór starfsfólk verslunarinnar að koma öðruvísi fram við hann. Hann fékk ekki að ljúka þjálfuninni og hann fékk ekki aðgang að tölvukerfi verslunarinnar. 

Tveimur vikum seinna var honum sagt upp og var útskýringin á því að hann væri ekki að standa sig í starfinu. 

Versace neitar ásökunum og hafa farið fram á að kærunni verði vísað frá. 






×