Verri horfur um loðnuveiðar lækka hagvaxtarspá bankans Haraldur Guðmundsson skrifar 26. nóvember 2014 07:30 Hagfræðideild Landsbankans gerir ráð fyrir að stýrivextir Seðlabankans verði óbreyttir fram á mitt næsta ár. Vísir/Daníel
Hagfræðideild Landsbankans spáir rúmlega fjögurra prósenta hagvexti á næsta ári en ekki 5,5 prósenta vexti eins og gert var ráð fyrir í spá deildarinnar í maí síðastliðnum. Horfurnar fyrir næsta ár séu því heldur lakari sem skýrist að miklu leyti af mun verri horfum fyrir loðnuveiðar en deildin reiknaði áður með. Þetta kemur fram í nýrri þjóðhagsspá bankans fyrir næstu þrjú árin sem kynnt verður í dag. „Samkvæmt spánni verður meðalhagvöxtur á spátímabilinu tæp 3,5 prósent samanborið við 3,9 prósent í maíspánni. Að sama skapi eru verðbólguhorfurnar ágætar, að minnsta kosti framan af, þó hagvöxturinn verði nokkuð kröftugur allan tímann,“ segir í þjóðhagsspánni. Þar er því gert ráð fyrir að hagvöxtur verði heldur meiri á tímabilinu en þau 2,9 prósent sem Seðlabankinn og Hagstofan gera ráð fyrir. Spárnar eru þó í meginatriðum svipaðar en Landsbankinn er bjartsýnni á þróun útflutnings á komandi árum. „Á næsta ári er útlit fyrir að enn bæti í og vöxtur einkaneyslu verði fjögur prósent. Þessi aukning verður meðal annars knúin af hækkun ráðstöfunartekna og auknu veðrými vegna aðgerða ríkisstjórnar til skuldalækkunar hjá lántakendum verðtryggðra húsnæðislána, auknum kaupmætti launa, minnkandi atvinnuleysi og breytingum á skattkerfinu.“ Starfsmenn hagfræðideildarinnar búast einnig við því að kaupmáttur launa aukist í heild um 8,7 prósent og að fasteignaverð haldi áfram að hækka. Verðið hefur hækkað um rúm sex prósent að nafnvirði frá upphafi ársins en í spá bankans er gert ráð fyrir að hækkunin nemi 8,5 prósentum við næstu áramót. Verðið eigi svo eftir að hækka um 9,5 prósent á árinu 2015, 6,5 prósent á árinu 2016 og 6,2 prósent á árinu 2017. Í spánni er einnig gert ráð fyrir að stýrivextir Seðlabankans verði óbreyttir fram á mitt næsta ár og að ólíklegt sé að aðstæður skapist fyrir frekari lækkun vaxtanna. „Þess vegna spáum við því að stýrivextir hækki um 0,75 prósentustig á spátímabilinu og verði 6,5 prósent í lok árs 2016.“
Mest lesið Hvað er opið um páskana? Neytendur Páskaeggin frá Nóa Síríus vinsælust Neytendur Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Viðskipti innlent Stjörnugrís sektaður fyrir íslenskan fána Neytendur Rússar flytja inn eldsneyti eftir drónaárásir Viðskipti erlent Trump græddi milljarða dala í dag Viðskipti erlent Forstjóri Boeing lætur af störfum fyrir árslok Viðskipti erlent Súkkulaði frá Nóa hækkar mest á meðan Freyja lækkar Neytendur Bónus, Extra og Heimkaup oftast með lægsta verðið á páskaeggjum Neytendur Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Lok, lok og læs hjá Gló Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Hundrað þúsund kall á haus Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Yfirmaður hjá Alvotech fékk 300 milljóna kaupauka Ráðinn nýr lögfræðingur hjá ÖBÍ Húsnæðisliðnum um að kenna en von á breytingum Fundar með Bankasýslunni í dag Bankasýslan þögul sem gröfin Festi vill sættast við Samkeppniseftirlitið Verðbólga eykst á ný Deildar meiningar um hvað sagt var í símtali Segir skilið við SVÞ eftir sextán ár í starfi Ætlar ekki að tjá sig fyrir aðalfund Landsbankans Skál flytur úr mathöllinni Fyrirhuguð löggjöf muni ekki laga leigumarkað í lamasessi Telja sig hafa gert nóg til að upplýsa Bankasýsluna Bankaráð Landsbankans svarar fyrir sig Opna nýja frjósemismiðstöð á haustmánuðum Fjárfestar líta í síauknum mæli til mikilvægis kynjajafnréttis Leiðinlegt með loðnuna en svona er þetta bara Pizzan reynir að eigna sér Megaviku Domino's Ráðinn framkvæmdastjóri úr hópi 27 umsækjenda Jón hættir sem stjórnarformaður Sýnar Eydís og Þorvaldur til Genís Setur 100 milljónir í að leiðrétta erlendan fréttaflutning um eldgosin Bein útsending: Orkuöryggi – Hverju getum við áorkað? Hitnar í fasteignamarkaði vegna íbúðakaupa Grindvíkinga Forsprakki verkefnisins „Stækkaðu framtíðina“ heimsótti Landakotsskóla Sjá meira