Fótbolti

Vermaelen skoraði sigurmark Barcelona gegn Malaga

Stefán Árni Pálsson skrifar
Úr leiknum í kvöld
Úr leiknum í kvöld vísir/getty
Barcelona vann 1-0 sigur á Malaga í annarri umferð spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Leikurinn fór fram á Nou Camp.

Fyrri hálfleikurinn var heldur bragðdaufur en Luis Suarez skoraði eitt mark í hálfleiknum sem var réttilega dæmt af vegna bakhrindingar.

Leikmenn Barcelona óðu hreinlega í færum í upphafi síðari hálfleiks og var Kameni í markinu hjá Malaga magnaður í kvöld og varði ítrekað frá stórstjörnunum. Heimamenn náðu samt að brjóta ísinn á 73. mínútu leiksins þegar Thomas Vermaelen þrumaði boltanum í netið. Ekki voru fleiri mörk skoruð í leiknum og fengu meistararnir þrjú stig og er liðið með fullt hús stiga.

Fyrr í dag mættust Real Sociedad og Sporting Gijon og gerðu þau markalaust jafntefli. 

Hér að neðan má sjá eina mark leiksins






Fleiri fréttir

Sjá meira


×