Skoðun

Verkföll hjá veikri þjóð

Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar

Vegna verkfalls verðum við að biðja þig að koma á morgun. Því miður þurfum við að færa keisaraskurðinn þinn sem var áætlaður í dag um nokkra daga vegna verkfalls ljósmæðra. Mér þykir það leitt en við vitum ekki hvað kom út úr blóðprufunni þinni í síðustu viku því það er verkfall.



Þetta hefur verið minn veruleiki í vinnunni síðastliðnar vikur. Það að geta ekki svarað fólki hverjar niðurstöður rannsókna séu eða hvenær skurðaðgerð verði framkvæmd er með öllu ólíðandi.



Á hverju kvöldi birtast myndir í fréttum af grísum sem ekki verður slátrað en það koma engar myndir af sjúklingum sem fá ekki viðeigandi heilbrigðisþjónustu. Sjúklingar virðast ekki vera sterkur þrýstihópur og þeir hafa ekki talsmenn sem eiga fjárhagslegra hagsmuna að gæta eins og grísirnir. Veikindi þeirra fara ekki í verkfall heldur versna í sumum tilfellum. Á meðan bíða allir eftir að samningar takist en það virðist vera nokkurs konar störukeppni eða þegjandaleikur í gangi. Allir eru að bíða eftir að hinir semji og ekkert gerist á meðan, ekki haldnir fundir í marga daga. Það hvílir mikil ábyrgð á þeim sem sitja í samninganefndum beggja vegna borðsins.



Af Austurvelli berast þær fréttir að alþingismenn deili um þingsköp forseta og ræði Rammaáætlun fram á nótt dag eftir dag. Alþingismenn voru kosnir af þjóðinni til þess að leiða okkur áfram upp úr kreppunni og rétta hlut þeirra sem minna mega sín. Verða alþingismenn ekki að standa í lappirnar og taka á erfiðum málum eins og þeim kjaradeilum sem nú standa yfir? Það verður fróðlegt að vita hvað gerist þegar flug fer að raskast vegna verkfalls og aflýsa þarf Smáþjóðaleikum svo eitthvað sé nefnt. Ætli Rammaáætlun geti þá beðið?



Lítið mark tekið á

Forstjóri Landspítala og landlæknir hafa báðir tjáð sig um ástandið og læknaráð Landspítalans hefur sent frá sér ályktanir sem hafa ratað á forsíður dagblaðanna. En lítið virðist tekið mark á þessum ummælum. Það er eins og oft áður, þetta reddast og sleppur fyrir horn er hugsunin sem ræður ríkjum. Nú þegar hjúkrunarfræðingar, en þeir eru þriðjungur starfsfólks Landspítalans, fara í verkfall stefnir í fordæmalaust ástand eins og forstjóri nefnir í síðasta föstudagspistli sínum.



Hetjur okkar tíma sem sungið var um nú um liðna helgi, eru sjúklingar sem fá ekki afgreiðslu sinna mála heldur eru settir á bið. Sú bið er óþolandi og ekki sæmandi menntaðri þjóð sem telur sig búa í velferðarsamfélagi. Ég mótmæli þessu ástandi og skora á þá sem að máli koma að semja og leysa þessa deilu þannig að veikt fólk verði ekki þolendur í kjaradeilu veikrar þjóðar í verkfalli.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×