Innlent

Verkfallshrina að skella á: „Erum mjög undrandi á því andvaraleysi sem ríkið sýnir“

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Páll Halldórsson, formaður BHM.
Páll Halldórsson, formaður BHM. Vísir/Stefán
Allt stefnir í verkföll næstkomandi þriðjudag hjá fjölmörgum félagsmönnum BHM en samninganefndir félagsins og ríkisins funduðu í morgun hjá ríkissáttasemjara. Að sögn Páls Halldórssonar, formanns BHM, miðaði ekkert í kjaraviðræðunum á fundinum.

„Við erum mjög undrandi á því andvaraleysi sem ríkið sýnir að reyna ekki að leysa úr þessari deilu. Það er staðreynd að það mun bresta á með verkföllum í næstu viku og okkur finnst undarlegt að menn séu ekki á fullu að reyna að leysa úr áður en til þessa kemur,“ segir Páll.

Hann segir að ríkið sé ekki tilbúið til að setjast niður yfir páskana og vinna að lausn deilunnar en samningamenn BHM séu tilbúnir í það.

„Þeir vilja hins vegar ekki setjast aftur niður fyrr en í næstu viku, eftir að verkfall er hafið. Ríkið er í raun og veru ekki tilbúið til að ræða málin og okkur finnst það mjög alvarleg staða.“

Lægstu laun ná ekki 300.000 krónum

Kröfur BHM eru þær að háskólamenntun verði metin almennilega til launa.

„Við sjáum það að nú eru menn að leggja fram kröfur um það að fólk sem hefur ekki fjárfest í neinni menntun fái 300.000 krónur í laun á mánuði. Okkar lægstu laun ná ekki þeirri tölu núna þannig að það er mikið að vinna. Við getum alveg ímyndað okkur að það væri verkefni sem tæki tíma að ná í gegn. Fyrst og fremst viljum við fá viðurkennt að menntun sé metin til launa.“

Þá er deilt um lögmæti nokkurra boðaðra verkfalla og hefur ríkið stefnt nokkrum stéttarfélögum innan BHM. Um er að ræða Stéttarfélag háskólamenntaðra starfsmanna á matvæla- og næringarsviði, Félag háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðsins,  Ljósmæðrafélag Íslands, Stéttarfélag lögfræðinga og Félag íslenskra náttúrufræðinga.

Páll segir að munnlegur málflutningur í þessum málum hafi farið fram í morgun og að niðurstaða muni liggja fyrir á mánudaginn, annan í páskum.


Tengdar fréttir

BHM heldur verkfallsboðun til streitu

BHM telur atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun hafa verið löglega. Formenn Starfsgreinasambandsins funda um lögmæti sinna aðgerða.

Námslánin eru að sliga háskólamenn

Þriðjungur félagsmanna BHM skuldar fimm milljónir eða meira í námslán. Verkföll eftir páska verði ekki samið. Segja endurgreiðslu námslána rýra kaupmátt.

Skrítið að meirihluti skikki suma í verkfall

Félagsdómur tekur á morgun fyrir kæru ríkisins vegna verkfallsboðunar nokkurra aðildarfélaga BHM. Formaður félagsins segir um annars konar mál að ræða en vegna verkfallsboðana SGS. Verkföll háskólamanna hefjist að óbreyttu í næstu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×