Innlent

Verkfallsboðun virðist hafa komið hreyfingu á viðræður

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Háskólanemar eru langþreyttir á truflun sem ítrekaðar verkfallsaðgerðir hafa á nám þeirra.
Háskólanemar eru langþreyttir á truflun sem ítrekaðar verkfallsaðgerðir hafa á nám þeirra. vísir/Ernir
„Það er kominn gangur í þessar viðræður núna og þar held ég nú að atkvæðagreiðslan [um verkfallsaðgerðir] hafi hjálpað til,“ segir Rúnar Vilhjálmsson, formaður Félags prófessora við ríkisháskóla, um yfirstandandi kjaraviðræður félagsins og Félags háskólakennara við ríkið. Fundað var í vikunni og boðað til nýs fundar í deilunni á mánudag.

Prófessorafélagið boðaði undir lok október undirbúning aðgerða í desember. Í vikunni var svo samþykkt með 85 prósentum atkvæða verkfall 2. til 18. desember náist ekki samningar.

„En núna er sem betur fer komin töluverð hreyfing á málin,“ segir Rúnar og segir samninganefndina alltaf leyfa sér að vera vongóða um að saman náist. Fundurinn á mánudag sé hins vegar mjög mikilvægur og ráði töluverðu um framhaldið.



Rúnar Vilhjálmsson formaður Félags prófessora við ríkisháskóla
„Það vill enginn stefna háskólastarfinu í upplausn eins og ef verst færi. Það myndum við síst vilja.“ Hins vegar hafi verið „ótrúlegur dráttur og tregða“ í viðræðunum. Félögin hafi fallist á að bíða bæði eftir niðurstöðu í deilu BHM og hjúkrunarfræðinga sem endaði með gerðardómi og svo eftir niðurstöðu SALEK-hópsins. Þó hafi viðræður lítið þokast áfram þegar þau mál lágu fyrir, þrátt fyrir að gefið hafi verið í skyn að samningar yrðu greiðari þegar þau mál leystust.

„En ég leyfi mér að vera bjartsýnn og trúi ekki öðru en að ríkið vilji koma til móts við sanngjarnar kröfur félagsins,“ segir Rúnar, en það vilji verja kaupmátt prófessora. „Og það má ekki gerast að þeir dragist aftur úr öðrum á vinnumarkaði.“ Þar fyrir utan þurfi að horfa á málið í alþjóðlegu samhengi því um sé að ræða hóp sem geti fengið vinnu um allan heim. „Og lætur auðvitað ekki bjóða sér hvað sem er hér heima.“ 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×