Innlent

Verkfall mun hafa hastarleg áhrif á framtíðaráform stúdenta

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
VÍSIR/ANTON
Verkfall háskólakennara mun hafa hastarleg áhrif á framtíðaráform stúdenta og framtíðarhorfur samfélagsins alls. Þetta kemur fram í ályktun Vöku FLS vegna yfirvofandi verkfalls háskólakennara.

Ljóst er að bagaleg staða hafi skapast fyrir nemendur Háskóla Íslands að sögn Vökuliða.

Kennarar við Háskóla Íslands hafa samþykkt verkfall. 502 kennarar sögðu já við verkfalli en nei sögðu 104. 920 manns eru á kjörskrá og 606 manns kusu í atkvæðagreiðslunni sem lauk á föstudag.

Í ályktuninni segir: Að sjálfsögðu setur Vaka sig ekki upp á móti kjarabaráttu háskólakennara og sýnir henni fullan skilning enda kjör þeirra óásættanleg. Tímasetning verkfallsins er þó vægast sagt óheppileg enda nær hún yfir prófatíð háskólans. Til að mynda setur verkfall lánamál stúdenta í uppnám þar sem óvíst er um prófadagsetningar og þar með útgreiðslu lána.“

Það muni ekki hvað síst hafa alvarlegar afleiðingar fyrir þá sem þiggja fyrirframgreiðslu frá bönkum. Auk þessa hefði verkfall áhrif á útskriftarnemendur sem ætli sér í framhaldsnám enda óvissa um hvenær þeir geti lokið grunnnámi. Atvinnuáform stúdenta fyrir komandi mánuði sé einnig orðinn óvissuþáttur.

Ljóst sé að staðan sem upp er komin hafi ekki aðeins áhrif á afmarkaðan hóp stúdenta, heldur snerti þá alla.

Vaka ítrekar fyrri áherslur um frekari fjárveitingu til háskólans. „Mennt er máttur og ekki síst þegar árar eins og nú. Mikilvægt er að fjárfest sé í mannauði fyrir komandi kynslóðir.“

Röskva, samtök félagshyggjufólks við Háskóla Íslands, sendi frá sér yfirlýsingu vegna yfirvofandi verkfalls kennara við skólann í gær.  Þar er það harmað að starfsmenn skólans sjái sig knúna til að boða til verkfalls.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×