Innlent

Verkfall flugvirkja: Deiluaðilar funda síðdegis

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands í húsnæði ríkissáttasemjara í fyrrin´tt.
Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands í húsnæði ríkissáttasemjara í fyrrin´tt. Vísir/Jóhann K. Jóhannsson
Boðað hefur verið til fundar í kjaradeilu Flugvirkjafélags Íslands, Icelandair og Samtaka atvinnulífsins klukkan fjögur í dag.

Þetta staðfestir Magnús Jónsson aðstoðarríkissáttasemjari í samtali við Vísi. Síðasta fundi samninganefnda deiluaðila var slitið um fjögurleytið í nótt án þess að nokkur niðurstaða fengist. Segir Magnús að deiluaðilar hafi nú fengið nokkurn tíma til þess að meta stöðuna og því tími til kominn til þess að sjá hvort að nýjar hugmyndir hafi komið fram.

Verkfall flugvirkja hófst í gærmorgun og hefur nú haft áhrif á fjölmarga farþega Icelandair sem þurft hefur að fresta fjölmörgum flugferðum vegna verkfallsins.

Formaður Flugvirkjafélagsins segir flugvirkja hafa dregið verulega úr kröfum sínum gagnvart viðsemjendum sínum og óttast að lög verði sett á verkfallið. Þá segir Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins að skoða verði heildarmyndina þegar samið verði við flugvirkja og að þeirra samningur muni hafa áhrif á aðra kjarasamninga.


Tengdar fréttir

Flugvirkjar óttast lagasetningu

Það kemur í ljós núna um og eftir hádegi hvort boðað verði til fundar í kjaradeilu flugvirkja, hjá Ríkissáttasemjara í dag. Formaður Flugvirkjafélagsins segir flugvirkja hafa dregið verulega úr kröfum sínum gagnvart viðsemjendum sínum og óttast að lög verði sett á verkfallið.

Nær öllum ferðum Icelandair til Ameríku aflýst

Icelandair hefur neyðst til þess að fresta nær öllum flugferðum flugfélagsins til Bandaríkjanna og Kanada sem voru á áætlun í dag vegna verkfalls flugvirkja félagsins. Samningafundi deiluaðila var slitið í nótt án árangurs.

Fundi slitið án árangurs

Árangurslitum fundi samninganefnda flugvirkja og Icelandair var slitið klukkan 4 í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×