Innlent

Verkfall 5500 ríkisstarfsmanna í uppsiglingu

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar
Þórarinn Eyfjörð, framkvæmdastjóri SFR.
Þórarinn Eyfjörð, framkvæmdastjóri SFR. Vísir/Pjetur
Engin teikn eru á lofti um annað en verkfall 5.500 ríkisstarfsmanna hefjist með fullum þunga á fimmtudag.

Framkvæmdastjóri SFR stéttarfélags, segir mikla reiði ríkja hjá hans fólki í garð fjármálaráðherra og það vandi honum ekki kveðjurnar.

Sjúkraliðar og SFR félagar sem starfa hjá ríkinu hafa boðað til verkfalls næst fimmtudag ef ekki nást nýir kjarasamningar á milli þeirra og ríkisins fyrir þann tíma. Aðgerðirnar koma til með að hafa áhrif á á annað hundrað ríkisstofnanir þar sem fólkið starfar.

Áhrifin verða hvað mest á Landspítalann, sýslumannsembættin um land allt, Tollstjórann og Ríkisskattstjóra. Þar hefja allir starfsmenn í félögunum tveimur strax ótímabundið verkfall á fimmtudaginn.


Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra.vísir/gva
Engin önnur teikn á lofti

Þórarinn Eyfjörð, framkvæmdastjóri SFR, stéttarfélags í almannaþjónustu, segir kjaradeiluna í algjörum hnút. Engir samningafundir hafa verið boðaðir frá því í síðustu viku og mikið ber á milli deiluaðila.

„Miðað við þessa einbeittu þögn sem kemur úr fjármálaráðuneytinu að þá, þá býst ég við því að verkfallið skelli á bara af fullum þunga á fimmtudaginn. Það eru engin önnur teikn á lofti.“

Þórarinn segir ríkið bjóða SFR félögum og sjúkraliðum minna en öðrum ríkisstarfsmönnum sem þegar er búið að semja við.

„Þetta er óskiljanleg staða sem upp er komin vegna þess að, að núna í síðustu viku, núna fyrir helgi þá var samið við önnur stéttarfélög, þ.e.a.s. Starfsgreinasambandið og Flóabandalagið um nákvæmlega sama 30% rammann fram til 2018- 19 eins og við höfum verið að fara fram á. 

Þetta er nákvæmlega sami rammi og, og gerðardómur setti utan um Félag hjúkrunarfræðinga. Þetta er nákvæmlega sami kostnaðarrammi og ríkið samdi við læknana og þeir eru að semja við nákvæmlega sama kostnaðarramma núna við Starfsgreinasambandið og Flóabandalagið. 

En svo koma þeir fram við starfsmenn sína sem eru í SFR og, og hérna Sjúkraliðafélaginu með þessum hætti. Þetta er algjörlega óskiljanlegt. En þessi skilaboð fjármálaráðherra, Bjarna Benediktssonar og ríkisstjórnarinnar til þessa fólks þau skilaboð verða ekkert misskilin sko. Þetta er algjör fyrirlitning sem er verið að sýna þessu fólki og sko ábyrgðin er þeirra, það er verið að keyra, verið að keyra samfélagið allt í verkföll núna.“



Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×