Viðskipti innlent

Verkefnaskortur leiddi til uppsagna hjá Matís

Haraldur Guðmundsson skrifar
Höfuðstöðvar Matís.
Höfuðstöðvar Matís. vísir/ernir
Átta starfsmönnum Matís var sagt upp störfum í síðasta mánuði þegar útlit var fyrir mikinn rekstrarvanda hjá opinbera hlutafélaginu. Forstjóri Matís segir styrkingu krónunnar og verkefnaskort hafa leitt til nauðsynlegra hagræðingaraðgerða svo fyrirtækið yrði ekki rekið með tapi á árinu.

„Uppsagnirnar í júlí voru einfaldlega út af rekstrarstöðunni. Annars vegar höfum við þurft að glíma við hækkun launa, eins og á almennum vinnumarkaði. Styrking krónunnar í þeim verkefnum sem við vorum komin með hefur áhrif en verulegur partur af okkar verkefnum hefur komið úr erlendum samkeppnissjóðum. Við höfðum sett út nokkra öngla en færri bitu á en gert var ráð fyrir,“ segir Sveinn Margeirsson, forstjóri Matís, í samtali við Fréttablaðið.

Sveinn Margeirsson, forstjóri Matís
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins ríkir mikil óánægja á meðal starfsmanna Matís vegna þess hvernig staðið var að hagræðingaraðgerðunum. Að sögn Sveins gæti þurft að skera enn frekar niður í ferðakostnaði starfsmanna og innkaupum á aðföngum. Um 120 manns vinna hjá Matís sem veitir ráðgjöf og þjónustu til fyrirtækja í sjávarútvegi og landbúnaði í verkefnum eins og matvælaöryggi, erfðatækni, umhverfismálum, vöruþróun og fleira.

„Við ákváðum að taka á þessum málum strax en núna eru engar áætlanir um frekari uppsagnir. Þær í júlí tengdust starfsfólki af ýmsum sviðum og með mismunandi starfsaldur. Það var horft á ýmsa þætti í starfseminni þegar þessar ákvarðanir voru teknar,“ segir Sveinn.

Matís er að stærstum hluta rekið fyrir sjálfsaflafé og alþjóðlegu rannsóknarverkefnin hafa verið grunnurinn að vexti þess. Rétt um fjórðungur af heildarfjármögnun fyrirtækisins er í gegnum þjónustusamning við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið.

„Það er óvenju lágt í alþjóðlegum samanburði eða þegar við miðum okkur við álíka fyrirtæki og stofnanir. Okkar fjármögnun er að stórum hluta úr samkeppnissjóðum sem er í eðli sínu tiltölulega óviss fjármögnun.“ 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×