Innlent

Verk að vinna þótt vetur sæki að

Hanna Ólafsdóttir skrifar
Guli liturinn lífgaði upp á grámann sem lá yfir Reykjavík í gær.
Guli liturinn lífgaði upp á grámann sem lá yfir Reykjavík í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Það var gott útsýni hjá iðnaðarmönnunum sem voru við störf uppi á þaki nýbyggingar í Hvörfunum í Kópavogi í gær.

Kólnað hefur í veðri síðustu daga og menn voru vel klæddir á þakinu enda fátt verra en að vera illa búinn þegar vetur konungur lætur til sín taka.

Hiti verður í kringum frostmark á norðanverðu landinu á morgun en sunnan heiða verður örlítið mildara með hitatölum upp í 5 gráður í Vestmannaeyjum samkvæmt Veðurstofu Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×