Verið að leita sátta um forvalið hjá VG 11. febrúar 2010 06:30 Nú er reynt að lægja öldurnar innan VG í Reykjavík, en forvalið um síðustu helgi, þar sem Sóley Tómasdóttir lenti í fyrsta sæti og Þorleifur Gunnlaugsson varð númer tvö, hefur dregið dilk á eftir sér.
Innan Vinstri grænna var í gær leitað sátta milli Þorleifs Gunnlaugssonar og ýmissa forystumanna í flokknum vegna nýlegs forvals flokksins í borginni. Þorleifur sagðist í gær vongóður um að sáttaleiðin yrði til þess að „í flokknum mæti allir lýðræði og sanngirni hér eftir“. Deilan snýst um að ekki hafi allir haft sömu tækifæri í forvalinu. Framboði Þorleifs var tjáð óformlega af formanni kjörstjórnar að ekki mætti sendast með og sækja útfyllta atkvæðaseðla til kjósenda. Þetta töldu aðrir frambjóðendur leyfilegt og höguðu sér eftir því. En samkvæmt reglum forvals VG í Reykjavík, geta félagsmenn fengið kjörseðla senda í tölvupósti, ef þeir þess óska. Kjósandinn skal svo „bera ábyrgð á að koma utankjörfundaratkvæðaseðlinum í löturpósti til kjörstjórnar“. Þessar reglur eru frá 6. febrúar. Eftir að Þorleifur kærði kosninguna hafnaði kjörstjórn kröfum hans og vísaði í reglur um forval, enda heimili þær póstkosningu. Kæra Þorleifs snerist meðal annars um heimsóknir til kjósenda. Spurður hvernig það samræmist þessum reglum að stuðningsmenn frambjóðenda megi fara með atkvæði heim til fólks og skila síðan fyrir það á kjörstað, segir Stefán Pálsson, sem var formaður kjörstjórnar í forvalinu: „Við höfum takmarkaða möguleika á að fylgjast með þessu, til dæmis að sjá úr hvaða prentara kjörseðill kemur. En kjörstjórn hefur legið yfir þessum reglum, eftir að kæran kom fram, og okkar niðurstaða var að þær hefðu ekki verið brotnar.“ Slíkar reglur kalli alltaf á nánari útskýringu, sem hafi birst í forvalsbæklingi. Í bæklingnum segir að félagsmenn geti fengið sendan kjörseðil í tölvupósti sem skuli lagður í ómerkt umslag sem aftur sé lagt í annað umslag merkt flokki, kjörstjórn og pósthólfi. Stefán nefnir að í fyrri kosningum innan VG hafi ekki verið gerðar ýtrustu kröfur um atriði af þessum toga. Vafa í kosningum eigi að meta kjósendum í hag. Niðurstaða alls þessa verði líklega sú að stífari reglur verði samdar. klemens@frettabladid.is Stefán PálssonÁlfheiður IngadóttirSóley tómasdóttir
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Fleiri fréttir „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi Sjá meira