Skoðun

Verið að brjóta stjórnarskrána á öldruðum og öryrkjum!

Björgvin Guðmundsson skrifar
Hagstofan hefur birt rannsókn um það hverja skorti efnisleg gæði. Samkvæmt rannsókninni skortir hóp öryrkja og aldraðra efnisleg gæði og hefur þessi hópur stækkað frá árinu 2013 til 2014. Með skorti á efnislegum gæðum er m.a. átt við eftirfarandi: Hefur ekki efni á að fara í vikulegt frí með fjölskyldunni, hefur ekki efni á kjöti, fiski eða sambærilegri grænmetismáltíð, a.m.k annan hvern dag, hefur ekki efni á heimasíma, farsíma eða sjónvarpi, hefur ekki efni á þvottavél, hefur ekki efni á bíl og ekki heldur á tölvubúnaði, hefur ekki efni á að kynda íbúðina nógu vel og hefur lent í vanskilum með húsnæðislán eða önnur lán vegna fjárskorts. Ef um skort á a.m.k. þremur framangreindum atriðum er að ræða, telst vera skortur á efnislegum gæðum.

Ríkið skammtar nauman lífeyriÞessi rannsókn er mjög athyglisverð. Hún staðfestir það, sem áður hefur verið vitað, að margir aldraðir og öryrkjar geta ekki lifað eðlilegu lífi vegna þess, að ríkið skammtar þeim svo nauman lífeyri, að þeir geta ekki framfleytt sér að fullu. Samkvæmt þessu er ljóst, að ríkið er að brjóta stjórnarskrána með þessu framferði gegn lífeyrisþegum. Réttur aldraðra og öryrkja til þess að lifa eðlilegu lífi er stjórnarskrárvarinn. Þegar stjórnvöld eru að skera mikið niður greiðslur til aldraðra og öryrkja eins og nú, eru þau að brjóta stjórnarskrána.

Láta lífeyrisþega fá þriðjung af hækkun launþegaRíkisstjórnin ætlar nú láta lífeyrisþega fá þriðjung af þeirri hækkun, sem launþegar fá á nýju samningstímabili. Það er hoggið í sama knérunn og áður. Í stað þess að láta lífeyrisþega fá meira en launþegar fá til þess að leiðrétta lífeyrinn vel er skorið niður til lífeyrisþega eins og áður. Lífeyrir einhleypra lífeyrisþega, sem einungis hafa tekjur frá TR, er í dag 225 þúsund krónur fyrir skatt, 192 þúsund eftir skatt. Eins hár og húsnæðiskostnaður er í dag er engin leið að lifa eðlilegu, mannsæmandi lífi af þessari hungurlús.Algeng húsaleiga í dag er 150 þúsund krónur á mánuði. Og þó hún sé 10 þúsund krónum lægri í vissum tilvikum sjá allir, að engin leið er að lifa eðlilegu lífi af því, sem eftir er af lífeyrinum. Þeir, sem eiga sitt húsnæði, þurfa að greiða eitthvað minna í húsnæðiskostnað. En útgjöld eru samt mikil í afborganir og vexti lána, fasteignagjöld, rafmagn og hita, hússjóð o.fl. Flestir úr þessum hópi öryrkja og aldraðra flokkast undir þá, sem skortir efnisleg gæði.

Lífeyrisþegar fái það sama og launþegarRíkisstjórnin hefur nú tækifæri til þess að laga ástandið hjá lífeyrisþegum og hætta að brjóta á þeim stjórnarskrárvarinn rétt. Hún getur látið lífeyrisþega fá sömu hækkun og láglaunafólk fékk sl. vor, þ.e. 31 þúsund króna hækkun á mánuði frá 1. maí. Lágmarkstrygging hækkaði þá um 31 þúsund á mánuði. 28% hækkun verður á þremur árum.Lífeyrir á að hækka í 300 þúsund á mánuði á þessum tíma eins og lágmarkslaun.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×