Erlent

Verhofstadt hættir við framboð og styður Tajani

atli ísleifsson skrifar
Guy Verhofstadt var frambjóðandi þinghóps Frjálslyndra demókrata.
Guy Verhofstadt var frambjóðandi þinghóps Frjálslyndra demókrata. Vísir/AFP
Ítalski Evrópuþingmaðurinn Antonio Tajani þykir langlíklegastur til að verða kjörinn forseti Evrópuþingsins, eftir að Guy Verhofstadt dró framboð sitt til baka og lýsti yfir stuðningi við Tajani.

Kosning nýs forseta hófst í morgun, en búist er við að úrslit liggi fyrir síðdegis. Hafi enginn frambjóðandi náð hreinum meirihluta í fyrstu þremur umferðum kosninganna er kosið milli þeirra tveggja sem hlutu flest atkvæði í þriðju umferðinni.

Verhofstadt segir að ákvörðunin sé fyrsta skrefið til að koma á bandalagi sem styður Evrópusamrunann og sem ætlað er að efla sambandið. „Það er nauðsynlegt. Með Trump, með Pútín og margar áskoranir til viðbótar sem Evrópa stendur frammi fyrir, er nauðsynlegt fyrir okkur að vinna saman að því að bæta Evrópusambandið,“ sagði Verhofstadt í morgun.

Tajani er frambjóðandi Kristilegra demókrata (EPP) á þinginu en þinghópurinn er sá stærsti á þinginu. Hinn 63 ára Tajani er einn af varaforsetum þingins og átti áður sæti í framkvæmdastjórn ESB þar sem hann fór með málefni samgangna og iðnaðar. Tajani er þó ekki óumdeildur þar sem hann hefur áður starfað náið með fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, Silvio Berlusconi.

Verhofstadt var frambjóðandi þinghóps Frjálslyndra demókrata, en frambjóðandi Jafnaðarmanna og samlandi Tajani, Gianni Pittella, virðist nú vera sá eini sem á möguleika á að sigra Tajani. Líkur á sigri Pittella minnkaði þó mikið eftir ákvörðun Verhofstadt.

Martin Schultz hefur gegnt embætti forseta Evrópuþingsins frá árinu 2012, en tilkynnti fyrr í vetur að hann hugðist láta af embætti og snúa aftur í þýsku landsmálin þar sem þingkosningar fara þar fram í haust.

Þingmenn þinghóps EPP eru 214 talsins, þingmenn þinghóps Jafnaðarmanna 189, Frjálslyndra demókrata 69, Íhaldsmanna 74 og annarra hópa samtals 205.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×