Lífið

Vergara og Manganiello gengu í það heilaga - Myndir

Stefán Árni Pálsson skrifar
Falleg hjón.
Falleg hjón. vísir
Leikaraparið Sofia Vergara og Joe Manganiello gengu í það heilaga um helgina.

Brúðkaupið fór fram í Palm Beach í Flórída og þótti að hið glæsilegasta. Vergara er þekktust fyrir hlutverk sitt í gamanþáttunum Modern Family og Manganiello er þekktur fyrir hlutverk sín í Magic Mike, Spiderman-myndunum og þáttunum How i met your mother.

Fjögur hundruð gestir voru viðstaddir athöfnina og þar á meðal leikkonan Reese Witherspoon og Channing Tatum. Manganiello flutti meðal annars lagið Sweet Child O' Mine fyrir Vergara.

Sofia Vergara var klædd í stórglæsilegum brúðarkjól eftir Zuhair Murad Couture

Hér að neðan má sjá myndir frá brúðkaupinu. 

A video posted by Sofia Vergara (@sofiavergara) on






Fleiri fréttir

Sjá meira


×