Innlent

Verður ekki fastagestur í íslensku spilavíti

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Willum gerir nú tilraun tvö til að fá spilavíti lögleidd.
Willum gerir nú tilraun tvö til að fá spilavíti lögleidd. Vísir / Getty / Daníel
Willum Þór Þórsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að spilahöll, eða spilavíti eins og það er jafnan kallað, smellpassi inn í íslenska ferðaþjónustu. „Þetta smellpassar fyrir Reykjavík,“ segir hann. „Áttatíu prósent af markhópnum eru túristar.“

Frumvarp sem hann hefur lagt fram sem heimilar slíkan rekstur er umdeilt en sjálfur segist hann hafa fengið góð viðbrögð. Willum gerir sér þó ekki grein fyrir því hvort málið njóti meirihlutastuðnings á Alþingi.

Ekki neitt „mini-Vegas“

„Ég held að þetta sé ágætis umræða,“ segir Willum sem býst við að sterkar skoðanir fólks á málinu muni koma fram. „Mér finnst þessi spilahöll miklu saklausara mál, þannig séð, heldur er verið að leggja upp með. Við erum ekki að fara að opna neitt „mini-Vegas“ í Reykjavík,“ segir hann.

„Það er alltaf verið að tala um að það vanti afþreyingu fyrir ferðamenn og ákveðna tegund af ferðamönnum, sem eru tilbúnir að eyða svolítið af peningum og staldra stutt við,“ segir hann og bendir líka á ráðstefnugesti. „Þetta er einn af þeim þáttum sem eru í tikkboxinu þegar verið er að sækja um og keppa um að fá ráðstefnur," segir hann.

Willum kynntist Arnari og Bjarka í fótboltaheiminum. Hann segir að þeir hafi masað um spilahallir.Vísir / Teitur
Byggt á upplýsingum hagsmunaaðila

Þetta er í annað sinn sem Willum leggur fram frumvarpið en meðflutningsmenn hans koma úr þremur mismunandi flokkum; Sjálfstæðisflokki, Bjartri framtíð og Framsóknarflokki. Frumvarpið fékk ekki efnislega meðferð á Alþingi þegar hópurinn lagði það fram á síðasta ári. 

Frumvarpið byggir á tveimur skýrslum sem einkaaðilar og áhugamenn um rekstur spilavítis sköffuðu auk samtala sem Willum átti við fjölmarga aðila. Önnur skýrslan var frá Lúðvík Bergvinssyni lögmanni og hin af Capacent. „Ég á ekkert af þessum upplýsingum, ég hef bara safnað þessu hingað og þangað,“ segir hann. 

Aðeins eitt rekstrarleyfi í boði

Eitt af því sem vakið hefur athygli við frumvarpið er að aðeins er gert ráð fyrir að eitt rekstrarleyfi verið gefið út. Það þýðir að aðeins má reka eitt spilavíti í einu, verði frumvarpið að lögum. „Það er nú bara af því að Danirnir gerðu það,“ segir Willum aðspurður um þessa tilhögun. 

Hann segist ekki muna hvort það hafi verið lagt til í annarri hvorri skýrslunni en þar var meðal annars fjallað um lagaumhverfið í öðrum löndum. „Það hefur örugglega verið talað um það að Danirnir hafi farið þessa leið,“ segir hann.

Önnur skýrslan kemur frá lögmanni sem vann fyrir tvíburabræðurna Arnar og Bjarka Gunnlaugssyni. Willum, sem kynntist þeim sem þjálfari í knattspyrnu, segir að þeim hafi verið tíðrætt um spilahallir. „Þeir mösuðu mikið um þetta þegar ég var að þjálfa,“ segir hann. 

„Þá var ég að segja þeim að ég hafi upplifað þetta þegar ég var í námi í Danmörku, ´91-´93. Þá voru Danir að opna þetta fyrsta „casino“ á SAS-hóteli ,“ segir hann. „Ég var forvitinn ungur maður og skoðaði þetta en ég er nú enginn spilamaður.“

Willum segir að Las Vegas hafi verið hroðaleg í dagsbirtu.Vísir / Lasvegaslover
Hefur farið til Las Vegas

Willum hefur þó kíkt á fleiri en eitt spilavíti. „Ég kíkti á SAS og ég hef komið til Las Vegas,“ segir hann „Þetta höfðar ekki til mín. Ég hef tekið þátt í getraunum og Lottó, en ekki þannig. Styrki Happadrætti Háskólans, kaupi happadrættismiða við og við til að styrkja málefnin,“ segir hann. 

Upplifunin af Las Vegas var þó ekki góð í minningunni. „Ég man alltaf fyrsta morguninn sem ég vaknaði hvað þetta var hroðaleg borg,“ segir hann. „Eins og hún er ljómandi á næturnar, hvað hún verður mikil eyðimörk í dagsbirtu.“

En verður hann fastagestur i íslensku spilavíti? „Ég á ekki von á því. Mér finnst þetta fyrst og fremst ferðaþjónustumál. Síðan fljóta hér framhjá ríkissjóði tekjur og það er augljóst að spilasalir eru í gangi þar sem fólk er að spila undir engri réttarvernd. Lögin ná ekki yfir þetta,“ segir hann og bætir við: „Það út af fyrir sig er alvarlegt mál.“

Spilavíti tabú í umræðunni

Umræða um spilavíti á Íslandi er ekki ný af nálinni og bendir Willum á að málið hafi verið til skoðunar í mörg ár. Enginn hafi þó viljað taka málið upp hingað til þar sem það sé tabú að ræða um lögleiðingu fjárhættuspila. 

„Kannski ástæðan fyrir því að flestir hafa ekki vilja vaða fram með þetta mál er að það er viðkvæmur endi á þessu sem er spilafíkn,“ segir hann. „En við getum samt ekki bara lokað augunum fyrir því og trúað að þetta sé ekki til staðar af því að það er ekki beint fyrir augunum á okkur. Þetta er til staðar. Þetta er vandi.“

Willum bendir á að frumvarpið gerir ráð fyrir því að þrjú prósent af spilaskatti sem lagður verður á starfsemina sé eyrnamerktur forvarnarstarfi. 


Tengdar fréttir

Spilavíti er of neikvætt orð

Willum Þór Þórsson segir spilahallir vera afþreyging og líti beri á þau í samhengi við ferðamannaiðnað.

Fjárhættuspil lögleitt - Perlan að spilahöll

Lög um fjárhættuspil voru samþykkt á Alþingi í dag með naumum meirihluta. Stjórnarandstaðan gagnrýnir forgangsröðun ríkisstjórnarinnar og flýtimeðferð málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×