Golf

Verður Birgir Leifur bestur í Kópavogi og Garðabæ?

Birgir Leifur og Norma Dögg voru valin best í Kópavogi í gær.
Birgir Leifur og Norma Dögg voru valin best í Kópavogi í gær. mynd/kópavogsbær
Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson var í gær valinn íþróttakarl Kópavogs 2014 og um helgina gæti hann bætt við sig annarri nafnbót.

Skagamaðurinn er nefnilega einnig tilnefndur sem íþróttakarl Garðabæjar og verður tilkynnt um þá útefningu á sunnudag.

Ástæðan er sú að Birgir Leifur er kylfingur í Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar, GKG.

Birgir Leifur hefur einnig verið valinn bestur á Akranesi í þrígang og hann gæti því lokað þrennunni í Garðabæ á sunnudag.

Hann keppir við þá Daníel Laxdal, Ingvar Jónsson, Dag Kár Jónsson, Dagfinn Ara Normann og Egil Magnússon um nafnbótina í Garðabænum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×