Viðskipti innlent

Verðsamráðsmálið tekið fyrir í febrúar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mennirnir þrettán eru á öllum aldri og gegndu ólíkum stöðum innan fyrirtækisins allt frá framkvæmdastjórum niður í menn í söluveri.
Mennirnir þrettán eru á öllum aldri og gegndu ólíkum stöðum innan fyrirtækisins allt frá framkvæmdastjórum niður í menn í söluveri. Vísir
Aðalmeðferð í máli sérstaks saksóknara á hendur þrettán starfsmönnum Byko, Húsasmiðjunnar og Úlfsins mun fara fram í febrúar á næsta ári. Þá verða rúmlega fjögur ár liðin síðan rannsókn málsins hófst. Málið er rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness en vegna fjölda sakborninga og verjenda mun aðalmeðferð fara fram í Héraðsdómi Reykjavíkur.

Fyrirtaka í málinu fór fram í morgun þar sem verjendur sakbornina lögðu fram greinargerðir þar sem útskýrðar voru ástæður þess hvers vegna farið væri fram á sýknu í málinu. Þá fór einn verjenda fram á að máli á hendur sínum skjólstæðingi yrði vísað frá dómi. Allir þrettán neituðu sök þegar málið var þingfest í héraði í maí síðastliðnum.

Sjá einnig: „Við erum að blæða báðir tveir“

Mennirnir eru sakaðir um að hafa átt í verðsamráði til að koma í veg fyrir að verslanirnar ættu í samkeppni. Gögn sérstaks saksóknara telja um 5000 blaðsíður en stór hluti þeirra eru símtöl og tölvupóstssamskipti mannana. Rannsókn stóð yfir í um þrjú ár áður en ákæra var gefin út í maí síðastliðnum.

Tankar olíufélaganna úti á Granda.
Málið er athyglisvert fyrir þær sakir að um refsimál er að ræða á hendur mönnum þrettán. Aðeins einu sinni áður hefur verið höfðað refsimál á hendur einstaklingum hér á landi. Þá voru forstjórar Olís, Skeljungs og Esso sakaðir um verðsamráð. Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði málinu hins vegar frá vegna annmarka í ákæru. Úrskurðinn í heild má sjá hér.

Mennirnir þrettán eru á öllum aldri og gegndu ólíkum stöðum innan fyrirtækisins allt frá framkvæmdastjórum niður í menn í söluverinu. Sá elsti er í dag 74 ára en sá yngsti var tvítugur þegar meint brot áttu sér stað. Athygli vekur að forstjórar fyrirtækjanna þriggja sæta ekki ákæru.

Meint brot áttu sér stað á tímabilinu 13. september 2010 til 3. mars 2011 með skipulagðri upplýsingagjöf um verð og tilboðskjör sérgreindra grófvörutegunda, einkum bygginga- og timburvara, í símtölum milli starfsmanna fyrirtækjanna sem var til þess fallin að hafa áhrif á verð, afslætti, álagningu og önnur viðskiptakjör innan umræddra fyrirtækja. Krafist er að mennirnir verði dæmdir til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. 


Tengdar fréttir

Þrettán manns í ákæru fyrir samkeppnislagabrot BYKO, Húsasmiðjunnar og Úlfsins

rettán eiga aðild að samkeppnislagabrotum BYKO, Húsasmiðjunnar og Úlfsins samkvæmt ákæru sem gefin hefur verið út. Þetta staðfestir Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari. Hann segir embættið ekki búa yfir upplýsingum um hversu margir af þeim sem málinu tengjast eru enn starfandi hjá fyrirtækjunum.

Einn starfsmaður Byko sendur í leyfi vegna ákæru um verðsamráð

"Fyrirtækið hefur ávallt haft samkeppnislög eins og aðra lagaumgjörð rekstursins í heiðri og það er einlæg von stjórnenda BYKO að dómstólar muni komast að þeirri niðurstöðu að ákæra saksóknara eigi ekki við rök að styðjast.“

Verðsamráð er gróft lögbrot gegn almenningi

Brotin sem starfsmenn Byko og Húsasmiðjunnar eru ákærðir fyrir eru alvarlegustu samkeppnislagabrot sem þekkjast og eru oftast nær almenningi til tjóns. Forstjóri Samkeppniseftirlitsins segir að þetta sé með umfangsmestu samráðsmálum sem komið hafi upp hér á landi.

Segir landsmenn hafa tapað á verðsamráði

Landsmenn töpuðu á samkeppnislagabrotum Húsasmiðjunnar og Byko og borga nú sektina fyrir það sem aðaleigendur Landsbankans, segir í fréttatilkynningu frá Múrbúðinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×