Innlent

Verðlagseftirlit með kassastrimlum

Linda Blöndal skrifar
Nýtt tæki fyrir neytendur til að fylgjast með verðlagi var kynnt í gær og nefnist "Strimillinn". Hafin er söfnun í gagnagrunn á upplýsingum um matarverð og öðrum nauðsynjum. 

Neytendur geta með þessu sjálfir sinnt verðlagseftirliti. Með snallsímann að vopni tekur fólk mynd af kassastrimlinum og sendir á netfangið móttaka@strimillinn.is sem hugbúnaðarfyrirtæki Loftfarið leggur senn lokahönd á. Núna safnast í gagnagrunn sem verður tilbúinn í vor. Þá mun fólk fá aðgang að sinni eigin innkaupasíðu og geta séð hvar hagstæðast er að kaupa inn.

Verðþróun í rauntíma

Einnig verður almenn síða opin öllum þar sem fylgst er með þróun verðlags á hundruð vörutegunda og samanburði á verði birtur. Neytendur geta fylgst með verðþróun í rauntíma og sömuleiðist hvort að auglýstur afsláttur verslana sé að skila sér. ASÍ og Neytendastofa safna upplýsingum um verðlag nú þegar en með þessu munu upplýsingar birtast stöðugt um verðið á matvörumarkaði.

Vöruupplýsingar flokkaðar

Margir eru nú þegar byrjaðir að senda kassastrimla á strimilinn.is. Þjónustan verður að minnsta kosti til að byrja með endurgjaldslaus. Hugbúnaðurinn mun flokka upplýsingarnar á margskonar hátt og fólk getur því með kerfisbundnum hætti nýtt kassastrimlana til að verða vakandi neytendur.  

Óvéfengjanleg gögn með kassakvittunum

„Viðbrögðin hafa verið hreint ótrúleg. Við höfum lítið fjallað um þetta og þetta hálfpartinn lak í fjölmiðla. Og á þessum eina degi höfðu þúsund manns skráð sig inn til að taka þátt í prófunum á vefnum", sagði Hugi Þórðarsson, einn eigandi Loftfarsins í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. „Á hverjum degi munu verða til tugir kílómetra af óvéfengjanlegum verðlagsupplýsingum með kassastrimlum og markmiðið með vefnum er að safna gögn af þessum strimlum og skrá á einn stað", sagði Hugi. 

Leitarbær gagnagrunnur

Þegar fólk sendir kassastrimilinn þá eru upplýsingarnar greindar og verða leitarbær. Hægt verður að slá inn ólíkar tegundir vara sem leitarorð inn á vefunn og fá nýjustu upplýsingar um vöruverð í mismunandi matvöruverslunum og hvað maður hefur keypt áður og á hvaða kjörum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×