Körfubolti

Verða þessar tröllatroðslur tilþrif kvöldsins?

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Haukur Helgi Pálsson, leikmaður Njarðvíkur, og Sherrod Wright, leikmaður Snæfells, buðu báðir upp á mögnuð tilþrif í Dominos-deild karla í körfubolta í gærkvöldi.

Haukur Helgi stal boltanum af KR-ingum í leik liðanna í Ljónagryfjunni og tróð með látum og Wright átti aðra eins tröllatroðslu í Hólminum þar sem Snæfell vann sigur á Grindavík.

Þessar tvær troðslur koma til greina sem tilþrif umferðarinnar í Dominos-Körfuboltakvöldi sem verður á dagskrá á Stöð 2 Sport HD klukkan 22.00 í kvöld.

Nú er bara spurning hvort einhverjir bjóði upp á önnur eins tilþrif í leikjum kvöldsins en kosning verður svo á Twitter eins og eftir hvern þátt. Fylgist með.


Tengdar fréttir

Tapar litli bróðir níunda leiknum í röð?

Bræðurnir Björn og Oddur Rúnar Kristjánssynir mætast enn á ný með liðum sínum í kvöld þegar Njarðvík tekur á móti KR í fimmtándu umferð Domino´s deildar karla í körfubolta.

Ingi Þór og Snæfellsstrákarnir með sterkar taugar

Snæfell vann mikilvægan sigur á Grindavík í Domino´s deild karla í körfubolta í gær en sigurvegari fékkst ekki fyrr en eftir tvær framlengingar. Það er ekkert nýtt fyrir Hólmara að fagna sigri í jöfnum leikjum á tímabilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×