Enski boltinn

Verða í grænni peysu til að heiðra minningu Clough

Clough í hinni frægu, grænu peysu.
Clough í hinni frægu, grænu peysu. vísir/getty
Stuðningsmenn Nott. Forest ætla að heiðra minningu knattspyrnustjórans Brian Clough á sérstakan hátt á miðvikudag.

Á morgun verða liðin tíu ár síðan þessa skrautlegi stjóri féll frá. Clough vann tvo Evrópubikara, einn deildarmeistaratitil og fjóra deildarbikara með Forest á árunum 1975-1993.

Forest á leik gegn Tottenham í deildabikarnum á miðvikudag og munu 1.000 stuðningsmenn Forest fá græna peysu, eins og Clough klæddist ósjaldan, frá félaginu til þess að klæðast á vellinum.

Clough var 69 ára þegar hann lést eftir harða baráttu við magakrabbamein.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×