Körfubolti

Verða fimm lið jöfn á toppnum með sex stig?

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Haukakonur geta unnið þriðja leikinn sinn í röð í kvöld.
Haukakonur geta unnið þriðja leikinn sinn í röð í kvöld. Vísir/Ernir
Fjórða umferð Dominos-deildar kvenna í körfubolta klárast í kvöld með þremur leikjum en svo gæti farið að eftir þá verði fimm af átta liðum deildarinnar jöfn að stigum á toppnum.

Haukar, Grindavík og Valur eru öll tveimur stigum á eftir toppliðum Keflavíkur og Snæfells. Keflavík tók toppsætið af Snæfelli um síðustu helgi með því að vinna fimmtán stiga sigur í Hólminum.

Grindavík heimsækir KR í DHL-höllina í Frostaskjóli í kvöld en bæði Haukar og Valur fá heimaleik. Haukakonur taka á móti Hamar í Schenkerhöllinni á Asvöllum en Valskonur fá Breiðablik í heimsókn í Vodafone-höllina á Hlíðarenda.  Allir leikirnir hefjast klukkan 19.15.

Vinni Haukar, Grindavík og Valur leiki sína í kvöld verða þau öll með þrjá sigra í fjórum fyrstu leikjunum alveg eins og Keflavík og Snæfell. Það er ljóst á fyrstu umferðunum að deildin verður mjög jöfn í vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×